Fréttir

true

Hræðilegt ef ég myndi missa húmorinn

Yfirheyrslan er fastur liður í Skessuhorni. Gestur í henni að þessu sinni er Ingi Björn Róbertsson, blikksmiður og uppistandari á Akranesi. Nafn: Ingi Björn Róbertsson Hvar ertu fæddur og hvenær? Ég er  fæddur á Sjúkrahúsinu á Akranesi 19. maí 1989. Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Iðinn, orðheppinn og æðrulaus. Áttu gæludýr? Nei. Hvers…Lesa meira

true

Heppinn Víkingalottó spilari á Akranesi

Í útdrætti í Víkingalottói í gær reyndust tveir Íslendingar með heppnina með sér. Fyrsti vinningur gekk reyndar ekki út, en það var stálheppinn Íslendingur sem var einn með 2. vinning í útdrætti kvöldsins og hlýtur hann rúmar 50 milljónir króna í vinning. Sá miði var keyptur í Olís í Mjóddinni í Reykjavík. Þá var einn…Lesa meira

true

Skipt um sjúkrabíl í Grundarfirði

Áhöfnin á sjúkrabíl HVE í Grundarfirði tók við lyklunum að nýjum sjúkrabíl í vikunni. Bíllinn hefur verið í notkun á Akranesi frá því hann kom nýr til landsins árið 2020, en þetta er fyrsti bíllinn sem kom á Vesturland af nýrri kynslóð sjúkrabíla sem fluttir voru til landsins. Hann leysir nú eldri bíl í Grundarfirði…Lesa meira

true

Gleymd skáld og gamlar sögur í meðförum Helga Bjarnasonar

Sögur af fólki í Borgarfirði, stöðum og fyrirbærum er að finna í nýrri bók; „Gleymd skáld og gamlar sögur – sagnaþættir úr Borgarfirði“ sem Helgi Bjarnason blaðamaður hefur tekið saman og gefið út. Í kynningu segir um efni bókarinnar að það sé gluggi inn í líf, störf og örlög Borgfirðinga á 19. öld og upp…Lesa meira

true

Náðu sér í soðningu

Frá því að strandveiðum lauk fyrir miðjan júlí, en vertíðin var með stysta móti í sumar, hafa sjómenn lítið haft að gera. Einstaka útgerðarmaður hefur þó leigt til sín ufsakvóta til þess að hafa eitthvað fyrir stafni, en þau fáu kíló sem er hægt að fá leigt af þorski eru á uppsprengdu verði þannig að…Lesa meira

true

Framkvæmdir hafnar í Súgandisey í Stykkishólmi

Sveitarfélagið Stykkishólmur hefur fengið rausnarlega styrki úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar og framkvæmda í Súgandisey. Í upphafi fékkst tæplega fjögurra milljóna króna styrkur fyrir hönnunarsamkeppni á útsýnisstað í Súgandisey, efnt var til samkeppni og varð tillagan Fjöregg hlutskörpust í þeirri keppni. Þegar vinningstillagan lá fyrir fékk sveitarfélagið tæpar 25 milljónir króna úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða til…Lesa meira

true

„Við erum sérhæfð í augnablikum“

Rætt við Kim Klöru Ahlbrecht og Daniel Þór Ágústsson sem bæði eru ljósmyndarar og eigendur Blik Studio á Akranesi Kim Klara Ahlbrecht og Daniel Þór Ágústsson eiga og reka ljósmyndastofuna Blik Studio á Akranesi. Stofuna opnuðu þau í ársbyrjun 2020 og var hún fyrst um sinn staðsett á Stillholti 23. Undir lok árs 2020 festu…Lesa meira

true

Sýður skötu fyrir vini sína í athvarfinu

Honum Eymari Einarssyni sjómanni á Akranesi fellur sjaldan verk úr hendi. Þótt kominn sé á löggiltan aldur eldri borgara stundar hann hluta úr árinu veiðar á Ebba AK, á dálítinn kvóta og leggur því netin þegar verð er hagstætt. Þá er hann nú á leiðinni á skel á Breiðafirði til að taka þátt í tilraunaveiðum…Lesa meira

true

Fimm fræknir fóru á heimsmeistaramót í TAC

Heimsmeistaramótið í borðspilinu TAC var haldið í lok júlí í smábænum Aichach, rétt fyrir utan Munchen í Þýskalandi. Þar tóku tvö lið frá Íslandi þátt í fyrsta skipti. Skessuhorn heyrði í Lofti Árna Björgvinssyni framhaldsskólakennara í Grundarfirði til að forvitnast um mótið og tildrög þess að Ísland fékk að taka þátt. Ef skoðuð er facebook…Lesa meira

true

Allt í miklum blóma hjá Ómari

Á Keflavíkurgötu 7 á Hellissandi býr blómaunnandinn Ómar Lúðvíksson og það ber þess vel merki því hann er með mjög fallegan blómagarð og allt í kringum heimili hans er mjög snyrtilegt og fallegt. Blaðamaður Skessuhorns kom við hjá Ómari fyrir vestan í síðustu viku og spjallaði aðeins við hann um þetta áhugamál hans. Ómar hefur…Lesa meira