
Hið nýja handrið er austan megin á eyjunni. Jón Aðalsteinsson að störfum. Ljósm. stykkisholmur.is
Framkvæmdir hafnar í Súgandisey í Stykkishólmi
Sveitarfélagið Stykkishólmur hefur fengið rausnarlega styrki úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða til uppbyggingar og framkvæmda í Súgandisey. Í upphafi fékkst tæplega fjögurra milljóna króna styrkur fyrir hönnunarsamkeppni á útsýnisstað í Súgandisey, efnt var til samkeppni og varð tillagan Fjöregg hlutskörpust í þeirri keppni. Þegar vinningstillagan lá fyrir fékk sveitarfélagið tæpar 25 milljónir króna úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða til deiliskipulagsgerðar og við gerð útsýnissvæðis á Súgandisey. Síðar fékk sveitarfélagið annan styrk, tæpar 16 milljónir, úr sjóðnum fyrir áframhaldandi vinnu í samræmi við vinningstillöguna.