Ómar Lúðvíksson fyrir utan húsið sitt sem nefnist Sætún. Ljósm. vaks

Allt í miklum blóma hjá Ómari

Á Keflavíkurgötu 7 á Hellissandi býr blómaunnandinn Ómar Lúðvíksson og það ber þess vel merki því hann er með mjög fallegan blómagarð og allt í kringum heimili hans er mjög snyrtilegt og fallegt. Blaðamaður Skessuhorns kom við hjá Ómari fyrir vestan í síðustu viku og spjallaði aðeins við hann um þetta áhugamál hans. Ómar hefur undanfarin ár sett niður plöntur á hverju vori og vakið mikla athygli hjá vegfarendum sem eiga leið hjá þar sem allt er í miklum blóma. En hvernig fer Ómar að því að rækta þennan fallega blómagarð?