
Forsíða bókarinnar Gleymd skáld og gamlar sögur – sagnaþættir úr Borgarfirði.
Gleymd skáld og gamlar sögur í meðförum Helga Bjarnasonar
Sögur af fólki í Borgarfirði, stöðum og fyrirbærum er að finna í nýrri bók; „Gleymd skáld og gamlar sögur – sagnaþættir úr Borgarfirði“ sem Helgi Bjarnason blaðamaður hefur tekið saman og gefið út. Í kynningu segir um efni bókarinnar að það sé gluggi inn í líf, störf og örlög Borgfirðinga á 19. öld og upp úr aldamótum 1900. Bókin er í kiljuformi, 203 blaðsíður að stærð og prýdd fjölda ljósmynda og teikninga, meðal annars sögulegra. 532 menn og konur koma við sögu og 125 býli í Borgarfirði eru nefnd og að auki 63 annars staðar.