Hinir fimm fræknu: Frá vinstri: Hafsteinn Mar, Hrafnkell Allan, Óttar, Júlíus Freyr og Loftur Árni. Ljósm. aðsend.

Fimm fræknir fóru á heimsmeistaramót í TAC

Heimsmeistaramótið í borðspilinu TAC var haldið í lok júlí í smábænum Aichach, rétt fyrir utan Munchen í Þýskalandi. Þar tóku tvö lið frá Íslandi þátt í fyrsta skipti. Skessuhorn heyrði í Lofti Árna Björgvinssyni framhaldsskólakennara í Grundarfirði til að forvitnast um mótið og tildrög þess að Ísland fékk að taka þátt. Ef skoðuð er facebook síða Lofts Árna af ferðasögu hans frá mótinu má sjá að föruneytið fagra saman stóð af Júlíusi Freyssyni fyrirliða liðsins (að hans sögn), Óttari Guðlaugssyni vatns- og bjórbera, Lofti Árna sem var titlaður ótíndur keppandi, Hafsteini Mar Sigurbjörnssyni yfirþjálfara og dragbít og Hrafnkeli Allan Sigurbjörnssyni samfélagsmiðlara og veitti hann einnig sálrænan stuðning.

Fimm fræknir fóru á heimsmeistaramót í TAC - Skessuhorn