
Ráðuneytið kynnir skýrslu um efnahagsleg áhrif hvalveiða
Ráðgjafafyrirtækið Intellecon hefur skilað inn skýrslu til matvælaráðuneytisins um efnahagsleg áhrifa hvalveiða í Íslandi. Í tilkynningu kemur fram að ráðuneytið hafi óskað eftir skýrslunni í byrjun árs. "Þar er áhersla lögð á að greina áhrif veiðanna á íslenskt efnahagslíf auk þess sem sjónum er beint að mörkuðum fyrir hvalkjöt, hvalaafurðir og mögulegum áhrifum hvalveiða á aðra útflutningsmöguleika Íslands," segir í tilkynningu ráðuneytisins.