Þessi unga blómarós mætti á kaffisöluna í Ölveri. Ljósm. aðsend

Vel heppnuð kaffisala í Ölveri

Á sunnudaginn var haldin kaffisala í sumarbúðum KFUM og K í Ölveri við rætur Hafnarfjalls og tókst hún með eindæmum vel. Kaffisalan í Ölveri er árlegur viðburður sem fram fer að loknu sumarstarfi. Gestum og gangandi gefst þá tækifæri til að kynna sér staðinn og starfsemina þar um leið og þeir gæða sér á heimalöguðum kræsingum af hlaðborði sem myndi sóma sér vel í öllum betri fermingarveislum. Í sumar dvöldu um 500 börn í Ölveri og mörg þeirra nýttu tækifærið um helgina til að mæta með fjölskyldur sínar í sumarbúðirnar til að rifja upp ævintýrin úr sínum dvalarflokki.

Vel heppnuð kaffisala í Ölveri - Skessuhorn