
Nemendur og kennarar í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði brutu upp skólastarfið með svokölluðum sólardögum í vor. Þar spiluðu nemendur m.a. boccía. Ljósm. úr safni/tfk.
Tuttugasta starfsár FSN er hafið
Í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði verða 164 nemendur í vetur sem er töluverð fækkun frá því í fyrra. FSN tók til starfa haustið 2004 og er tuttugasta starfsár skólans því hafið. Þá hefur frá árinu 2007 verið rekið framhaldsdeild á Patreksfirði. Nýnemadagur var miðvikudaginn 16. ágúst og hófst kennsla fimmtudagsmorguninn 17. ágúst að lokinni skólasetningu. Í haust eru 27 nýnemar í skólanum.