
Húsasmíði og opin stúdentsbraut vinsælast í FVA
Skólastarf í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi er komið í fullan gang eftir sólríkt og gott sumar. Alls eru 524 nemendur í skólanum, bæði í bóklegu og verklegu námi og er það nokkur fjölgun frá því í fyrra. Í boði er fyrir dagskólanemendur, auk stúdentsbrauta með ýmsum sérsviðum, að stunda nám í húsasmíði, rafvirkjun og vélvirkjun. Húsasmíði í dagskóla er sérlega vinsæl námsbraut í ár og opin stúdentsbraut er langvinsælust í bóknámi. Á nýnemadaginn mættu 111 hressir nýnemar sem fengu kynningu og fræðslu, fóru í ratleik og gæddu sér á hamborgara í mötuneytinu. Nýnemaferðin er föstudaginn 25. ágúst en þá skipuleggur nemendafélagið (NFFA) rútuferðalag fyrir hópinn til að bjóða nýnema velkomna í skólann. Stjórn NFFA vinnur núna að því að leggja línur fyrir vetrardagskrána, sem dæmi má nefna dansleikjahald, leiksýningu og margvíslegt klúbbastarf.