
Blikur á lofti varðandi heyfeng og ásetning í haust – fréttaskýring um fund BÍ í morgun
Stjórn og starfsfólk Bændasamtaka Íslands (BÍ) er í þessari viku á ferð um landið og heldur alls 13 fundi með bændum. Fyrsti slíkur var fyrir hádegi í dag í Borgarnesi. Mæting bænda var fremur slök enda margir að sinna seinni slætti, í ferðalögum eða áttu ekki heiman gengt. Á fundinum er fjallað um starfsemi Bændasamtakanna, málefni sveitanna og komandi tíð. Gunnar Þorgeirsson formaður BÍ hélt stutta framsögu í morgun. Sagðist hann vera nýkominn af fundi með kollegum sínum í Skandinavíu. Þar hafi skýrt komið fram að hvarvetna búa menn við sama vandamál og hér að nýliðun væri lítil í stétt bænda. Því sé það verkefni Bændasamtakanna, stjórnvalda og annarra að gera hvað hægt er til að bæta afkomuna og kveikja aukinn áhuga fyrir atvinnugreininni. Það sé þó erfitt á sama tíma og aðgangur að lánsfé sé takmarkaður og á slæmum kjörum. Sagði hann að íslenskur landbúnaður væri að velta um 81 milljarði á ári, búskapur væri á 2.369 býlum, af tæplega 6000 lögbýlum. Um 2.900 störf eru við landbúnað, en að auki skapar landbúnaður um átta þúsund afleidd og óskráð störf.