Fréttir

true

Hvanneyrarhátíð í blíðskaparveðri – Myndasyrpa

Óhætt er að segja að veðurguðirnir hafi verið Hvanneyringum og gestum þeirra afar hliðhollir í gær þegar Hvanneyrarhátíð fór fram. Sólin skein, hitinn var hátt í tuttugu gráður og það kunni fólk að meta; streymdi á staðinn og naut þess sem heimafólk stóð fyrir. Hald manna var að gestafjöldi hefði slagað í það mesta sem…Lesa meira

true

Frændur í sviðsljósinu á HM

Máni Hilmarsson frá Borgarnesi og Gljátoppur frá Miðhrauni urðu heimsmeistarar í slaktaumatölti á HM sem lýkur í dag í Hollandi. Þeir keppa fyrir Svía á HM í Hollandi, en Máni hefur búið í Svíðþjóð undanfarin ár. Þetta er annar Heimsmeistaratitil Mána en hann varð eins og kunnugt er heimsmeistari í fimmgangi í ungmennaflokki árið 2017…Lesa meira

true

Eflir vöktun með flóði úr Hafrafellslóni

Elmar Snorrason hefur komið fyrir vefmyndavélum þar sem hægt er að fylgjast í rauntíma með rennsli í Hvítá í Borgarfirði, ofan við Húsafell. Nú er Hafrafellslón við vesturjaðar Langjökuls komið á yfirfall og einungis er spurning hvort hlaupi skyndilega úr því eða að vatnið sem þar hefur safnast hafi fundið sér leið undir jökulinn. Lónið…Lesa meira

true

Úr safni: Allar breytingar fela í sér tækifæri

Segir Hallgerður Gunnarsdóttir frá Hjarðarfelli í viðtali úr safni Skessuhorns frá árinu 2011. Hún er hæglát, hefur sterkar skoðanir og segir þær á sinn ljúfa hátt. Er alin upp í íslenskri sveit vestur á Snæfellsnesi á bæ undir samnefndu felli. Er því vön að vinna og veit að hlutir gerast ekki nema ásetningur og framkvæmdir…Lesa meira

true

Kjánar & gellur á ferð í Hlöðuvík – Myndasyrpa

Í byrjun mánaðarins fór vaskur hópur fólks í fjögurra daga gönguferð í Hlöðuvík á Hornströndum. Hópurinn nefnir sig Kjánar & gellur og er að stofni til félagar úr ´71 árganginum á Akranesi auk annarra ferðafélaga. „Göngur, grill og gleði einkenndi ferðina rétt eins og venjulega, en við vorum einstaklega heppin með veður. Það var hreint…Lesa meira

true

Slakri grásleppuvertíð senn að ljúka

Grásleppuvertíðinni lýkur víðast hvar á landinu á morgun, laugardaginn 12. ágúst. Gildir það um öll veiðisvæði að innanverðum Breiðafirði undanskildum, en þar lýkur veiðum um mánaðamótin næstu. Það er síðar í ljósi þess að veiðar mega ekki hefjast við Breiðafjörð á sama tíma og annars staðar vegna verndunar æðarfugls. Fiskistofa veitti í upphafi vertíðarinnar leyfi…Lesa meira

true

Dagskrá Hvanneyrarhátíðar á morgun

Hvanneyrarhátíð verður haldin hátíðleg á morgun, laugardaginn 12. ágúst frá klukkan 13:30. Dagskrá: Kl. 13:30 Setning hátíðar á kirkjutröppunum – Ragnheiður I Þórarinsdóttir, rektor LbhÍ Frá kl. 14:00 – 16:00 Frí andlitsmálun fyrir börnin á hlaði Gömlu torfunnar Gunnhildur Lind Photography með fjölskyldumyndatökubás í Frúargarði Frá kl. 14:00 – 15:00 Vísindahorn fyrir börnin með Marinó…Lesa meira

true

Vatnaleiðin stikuð alla leið

Óhætt er að segja að vel hafi verið brugðist við verkbeiðni Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs þegar til stóð að stika restina af Vatnaleiðinni, frá Langavatni og að Bifröst. Sextán sjálfboðaliðar, leiddir af hinni vösku Stikunefnd FFB, luku við að stika síðasta legginn fyrr í vikunni. Stikun Vatnaleiðar hófst í fyrrahaust en þá var merktur fyrsti leggur leiðarinnar,…Lesa meira

true

Ýmsar lagfæringar við Sólvelli í Grundarfirði

Í sumarlokun leikskólans Sólvalla í Grundarfirði hefur verið unnið að ýmsum viðhaldsframkvæmdum. Á fréttasíðu Grundarfjarðarbæjar er greint frá því að meðal helstu framkvæmda hafi verið að skipta um gólfefni á sameiginlegum rýmum allra deilda og á starfsmannagangi, fræstar voru gólfhitalagnir í gólf í elsta hluta hússins og blikksmiðir lagfærðu loftræstikerfi. Stærstu rýmin, tvö minni herbergi…Lesa meira

true

SSV gerir alvarlegar athugasemdir við samgönguáætlun ráðherra

27 sinnum hærri upphæð til nýframkvæmda á Suðurlandi, í kjördæmi ráðherra, en áætlað er að verja á Vesturlandi Um síðustu mánaðamót rann út frestur til að skila inn athugasemdum í Samráðsgátt stjórnvalda um þingsályktunartillögu um samgönguáætlun 2024-2038, ásamt fimm ára aðgerðaáætlun. Það er Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra sem lagði áætlunina fram, en þess ber að…Lesa meira