
Fánum prýddur Willys jeppi Péturs Jónssonar fremstur meðal jafningja á bæjarhlaðinu.
Hvanneyrarhátíð í blíðskaparveðri – Myndasyrpa
Óhætt er að segja að veðurguðirnir hafi verið Hvanneyringum og gestum þeirra afar hliðhollir í gær þegar Hvanneyrarhátíð fór fram. Sólin skein, hitinn var hátt í tuttugu gráður og það kunni fólk að meta; streymdi á staðinn og naut þess sem heimafólk stóð fyrir. Hald manna var að gestafjöldi hefði slagað í það mesta sem verið hefur á Hvanneyrarhátíð til þessa. Engu breytti þótt talsverður hluti þjóðarinnar hefði á sama tíma verið í Gleðigöngu í Reykjavík eða á Fiskideginum mikla á Dalvík, Hvanneyrarhátíð á sína traustu fylgjendur.