Hér er verið að skipta um undirlag undir rólum í stóra garðinum, eftir að búið var að taka upp og hreinsa vel grasmotturnar, sem aftur verður komið fyrir á sínum stað. Ljósm. Grundarfjarðarbær

Ýmsar lagfæringar við Sólvelli í Grundarfirði

Í sumarlokun leikskólans Sólvalla í Grundarfirði hefur verið unnið að ýmsum viðhaldsframkvæmdum. Á fréttasíðu Grundarfjarðarbæjar er greint frá því að meðal helstu framkvæmda hafi verið að skipta um gólfefni á sameiginlegum rýmum allra deilda og á starfsmannagangi, fræstar voru gólfhitalagnir í gólf í elsta hluta hússins og blikksmiðir lagfærðu loftræstikerfi. Stærstu rýmin, tvö minni herbergi og stakir veggir, voru málaðir, búið er að setja upp nýja eldhúsaðstöðu þannig að kaffistofa verði þar sem vinnuherbergi var og öfugt. „Þessa dagana er svo verið að skipta um fallvarnarefni í kringum leikkastala, bát og klifurgrind annars vegar og rólur í litla garðinum hins vegar, auk þess sem mottur undir rólum í stóra garði eru hreinsaðar og endurlagðar. Gömlu svörtu gúmmímottunum - megninu af þeim - er þar með skipt út fyrir nýtt og litríkt gervigras.“

Ýmsar lagfæringar við Sólvelli í Grundarfirði - Skessuhorn