
Eflir vöktun með flóði úr Hafrafellslóni
Elmar Snorrason hefur komið fyrir vefmyndavélum þar sem hægt er að fylgjast í rauntíma með rennsli í Hvítá í Borgarfirði, ofan við Húsafell. Nú er Hafrafellslón við vesturjaðar Langjökuls komið á yfirfall og einungis er spurning hvort hlaupi skyndilega úr því eða að vatnið sem þar hefur safnast hafi fundið sér leið undir jökulinn. Lónið var komið á yfirfall fyrir rúmum mánuði síðan og því er síðari tilgátan líkleg. Hins vegar ef lónið brestur skyndilega má búast við miklu flóði í ánni líkt og varð í ágúst 2020 þegar vatnið í Hvítá þrefaldaðist á augabragði. Þá er varinn góður fyrir alla sem verða á þeim tíma í nálægð við ána og því ákvað Elmar að efla vöktunina. Hann flytur inn og selur vefmyndavélar og hefur auk þess sett upp fjölda veðurmyndavéla.