
Vaskir ferðafélagar. Ljósmyndi: Pétur Magnússon og fl.
Kjánar & gellur á ferð í Hlöðuvík – Myndasyrpa
Í byrjun mánaðarins fór vaskur hópur fólks í fjögurra daga gönguferð í Hlöðuvík á Hornströndum. Hópurinn nefnir sig Kjánar & gellur og er að stofni til félagar úr ´71 árganginum á Akranesi auk annarra ferðafélaga. „Göngur, grill og gleði einkenndi ferðina rétt eins og venjulega, en við vorum einstaklega heppin með veður. Það var hreint dásamlegt að vera með þessum snillingum, rétt eins og síðustu ár,“ skrifaði Pétur Magnússon um ferðina: „Við dvöldum í húsunum í Hlöðuvík þar sem ekkert síma- eða netsamband er og gengum þaðan á daginn um nágrennið. Selir og refir er dagleg sjón á þessu svæði og í sjósundsferð hjá okkur fengum við forvitinn sel nánast alveg inn í hópinn,“ segir Pétur.