
Hluti hópsins sem tók þátt í lokaáfanga verksins. Ljósm. ge
Vatnaleiðin stikuð alla leið
Óhætt er að segja að vel hafi verið brugðist við verkbeiðni Ferðafélags Borgarfjarðarhéraðs þegar til stóð að stika restina af Vatnaleiðinni, frá Langavatni og að Bifröst. Sextán sjálfboðaliðar, leiddir af hinni vösku Stikunefnd FFB, luku við að stika síðasta legginn fyrr í vikunni. Stikun Vatnaleiðar hófst í fyrrahaust en þá var merktur fyrsti leggur leiðarinnar, frá Hlíðarvatni að Hítarvatni. Fyrr í sumar var síðan stikuð leiðin frá Hítarvatni að Langavatni og í síðustu viku var síðan lokið við þetta umfangsmikla stikunarverkefni.