Fréttir

true

Fjölmenni á Sturluhátíð í Dölum – myndir

Sturluhátíð var haldin síðastliðinn laugardag að Staðarhóli í Saurbæ og að Laugum í Sælingsdal að viðstöddu fjölmenni. Um 200 manns sóttu samkomuna. Staðarhóll er bær sagnaritarans Sturlu Þórðarsonar, eins merkasta sagnaritara Íslendinga, sem meðal annars er talinn hafa átt stóran þátt í ritun Sturlungu. Þar voru afhjúpuð fjögur söguskilti tileinkuð Sturlu, sem Sturlufélagið hafði látið…Lesa meira

true

Einn lést og sex slösuðust á Snæfellsnesvegi

Alvarlegt umferðarslys varð á Snæfellsnesvegi norðan við Hítará í hádeginu í gær. Þar rákust saman tvær bifreiðar; húsbíll og jepplingur, sem komu úr gagnstæðri átt. Sjö erlendir ferðamenn voru í bifreiðunum og var farþegi úr annarri þeirra úrskurðaður látinn á vettvangi.  Þrír voru fluttir af vettvangi með þyrlu Landhelgisgæslunnar og þrír með sjúkrabifreið. Báðar bifreiðar…Lesa meira

true

Nýr steypuskáli risinn á Grundartanga

Framkvæmdir við byggingu nýs steypuskála Norðuráls ganga vel, að sögn Sigrúnar Helgadóttur framkvæmdastjóra Norðuráls á Grundartanga. Ístak er aðalverktaki við framkvæmdina en fjöldi annarra fyrirtækja kemur einnig að verkefninu sem fullbúið mun kosta um 16 milljarða króna. Blaðamaður Skessuhorns brá sér í vikunni sem leið á Grundartanga og tók meðfylgjandi myndir af húsinu. Búið var…Lesa meira

true

Fyrri slætti víðast hvar lokið

Bændur um vestanvert landið eru nú flestir búnir með fyrri slátt enda góður þurrkur búinn að vera í júlí. Uppskeran af fyrri slætti er þó undir meðallagi og því treysta menn á góða sprettu og uppskeru af túnum og ökrum síðar í sumar. Meðfylgjandi mynd var tekin í Innri Akraneshreppi í gærmorgun. Horft yfir Kirkjuból…Lesa meira

true

Sjö fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur

Alvarlegt umferðarslys varð á Snæfellsnesvegi norðan við Hítará skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Tveir bílar lentu í árekstri; húsbíll og jepplingur. Veginum var lokað vegna slyssins og er hann enn lokaður samkvæmt heimildum Skessuhorns. Vegagerðin bendir á hjáleið um Bröttubrekku. Vísir.is hefur það eftir lögreglu að sjö hafi verið fluttir á slysadeild. Þrír voru…Lesa meira

true

Harður árekstur við Hítará á Mýrum

Nú skömmu eftir hádegi varð harður árekstur tveggja bíla við Hítará á Mýrum. Samkvæmt fréttavef Ríkisútvarpsins var þyrla Landhelgisgæslunnar send á vettvang og Snæfellsnesvegi norðan Hítarár lokað. Lögreglan gat ekki veitt frekari upplýsingar að svo stöddu.Lesa meira

true

Hákon Arnar á leið í franska boltann fyrir risaupphæð

Knattspyrnumaðurinn tvítugi, Hákon Arnar Haraldsson frá Akranesi, er samkvæmt dönskum og íslenskum fréttamiðlum á leið til franska knattspyrnufélagsins Lille frá FC Köbenhavn. Er fullyrt að franska félagið greiði sem nemur allt að 2,5 milljörðum íslenskra króna fyrir Skagamanninn. Hlutur Knattspyrnufélags ÍA af þessum félagaskiptum gætu numið nokkur hundruð milljónum króna samkvæmt samningi sem gerður var…Lesa meira

true

Endurnýjun hluta Borgarbrautar á undan áætlun

Í nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar kemur fram að stofnunin hafi að undanförnu, í samstarfi við Veitur, Rarik og Borgarbyggð, unnið að endurbótum og lagnagerð á um 550 m kafla Borgarbrautar í Borgarnesi, hinni gömlu þjóleið sem liggur niður að Borgarneshöfn. Framkvæmdir hófust í júlí á síðasta ári og verða verklok í síðasta lagi um miðjan…Lesa meira

true

Sanngjarnt jafntefli á Skaganum

Eftir fimm sigurleiki í röð í Lengjudeildinni náði Vestri frá Ísafirði að stöðva sigurgöngu Skagamanna þegar liðin gerðu jafntefli 1:1 á Akranesvelli í gær. Leikurinn var lengst af frekar bragðdaufur og lítið um marktækifæri en hvort liðið fékk sitt hvort marktækifærið í fyrri hálfleik. Vestramenn fengu sitt færi um miðjan hálfleikinn en þá komst Vladimir…Lesa meira

true

Borgarbyggð hyggst áfrýja í Króksmáli

Byggðarráð Borgarbyggðar hefur samhljóða samþykkt að að óska eftir áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar vegna Landsréttardóms frá 23. júní sl. þar sem sveitarfélagið tapaði máli gegn Gunnari Jónssyni á Króki í Norðurárdal. Skessuhorn sagði frá dómnum í frétt nýverið, en málið snérist um greiðsluþátttöku sveitarfélagsins í girðingu sem Gunnar lét reisa á mörkum afréttar og Krókslands. Í…Lesa meira