
Slysið varð á Snæfellsnesvegi skammt norðan við Hítará. Ljósm. úr safni.
Sjö fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur
Alvarlegt umferðarslys varð á Snæfellsnesvegi norðan við Hítará skömmu fyrir klukkan eitt í dag. Tveir bílar lentu í árekstri; húsbíll og jepplingur. Veginum var lokað vegna slyssins og er hann enn lokaður samkvæmt heimildum Skessuhorns. Vegagerðin bendir á hjáleið um Bröttubrekku.
Vísir.is hefur það eftir lögreglu að sjö hafi verið fluttir á slysadeild. Þrír voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar og fjórir með sjúkrabílum.