Fréttir

true

IceDocs samhliða Hinsegin hátíð Vesturlands

Heimildamyndahátíðin IceDocs verður haldin samhliða hátíðinni Hinsegin Vesturland á Akranesi dagana 19. – 23. júlí. Nýjar alþjóðlegar heimildarmyndir verða sýndar og vinnustofa verður haldin á vegum Samtaka kvikmyndaleikstjóra. Opnunarmynd hátíðarinnar er Boylesque eftir pólska leikstjórann Bogna Kowalczyk, sem hlaut verðlaun fyrir myndina á HotDocs Canadian International Film Festival á árinu. Þess má geta að íslenska…Lesa meira

true

Hlutfallsleg fjölgun erlendra ríkisborgara

Alls voru 70.307 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi 1. júlí síðastliðinn og hafði þeim fjölgað um 5.722 á sex mánaða tímabili frá 1. desember 2022, eða um 8,9%. Það er þrjátíu sinnum meiri hlutfallsleg fjölgun í þessum hópi landsmanna miðað við í hópi Íslendinga sjálfra í ljósi þess að þeir eru nú…Lesa meira

true

,,Hvað er fallegra en að hafa garðinn sinn í öllum litum og tónum?“

Rætt við hina nýgiftu Jón Arnar Sverrisson og Arnar Símonarson Skagamaðurinn Jón Arnar Sverrisson sinnir starfi garðyrkjustjóra Akraneskaupstaðar. Hann giftist Dalvíkingnum og flugþjóninum Arnari Símonarsyni laugardaginn 17. júní síðastliðinn. Parið á hús á Dalvík en einnig íbúð á Akranesi, hjartað slær því á tveimur stöðum og eru þeir mikið á ferðinni milli landshluta. Blaðamaður hitti…Lesa meira

true

Skemmdarverk unnin á enn einu strætóskýlinu á Akranesi

Skömmu eftir miðnætti í gær voru brotnar þrjár af fimm rúðum í strætóskýli við Stillholt á Akranesi. Íbúar í nærliggjandi húsum hrukku við enda fylgdi rúðubrotinu mikill hávaði um klukkan 00:15. Elías Kristjánsson starfsmaður áhaldahúss Akraneskaupstaðar var í morgun að hreinsa upp glerbrotin. Hann segir að skemmdarvargarnir hafi notað rist úr götuniðurfalli til að brjóta…Lesa meira

true

56 óku of hratt og fimm undir áhrifum

56 ökumenn voru stöðvaðir af lögreglu í landshlutanum síðastliðna viku grunaðir um of hraðan akstur, en það er óvenju mikill fjöldi. Sá sem hraðast ók mældist á 139km/klst en sex ökumenn mældust á yfir 130 km/klst. Fimm ökumenn voru grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. Hjá einum þeirra voru einnig haldlögð meint fíkniefni.…Lesa meira

true

Viðvarandi ásókn í efnistöku við Hvalfjörð – fréttaskýring og myndir

Nokkrar stórar malarnámur eru við Hvalfjörð og er eftirspurn eftir efnistöku þar síst að minnka. Í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar kemur fram að afmörkuð séu rúmlega 30 efnistökusvæði og stefnan er að takmarka efnistöku við núverandi staði, frekar en að opna ný námasvæði; til að vernda sem mest lítt raskað land í sveitarfélaginu. Stærstu námurnar eru í…Lesa meira

true

Grundfirðingar fagna Þorláksmessu að sumri

Kaffibrennslan Valeria og Græna kompaníið í Grundarfirði fagna Þorláksmessu á sumri saman á morgun, fimmtudag. Skellt verður upp Pop-up (skyndi-) göngustíg milli kaffihúsanna milli kl. 17 og 20 og þau verða bæði með opið til kl. 21 og með tilboð eins og kemur fram í auglýsingu í Skessuhorni sem kom út í dag. Þorláksmessa á…Lesa meira

true

Dagskrá Reykholtshátíðar kynnt

Reykholtshátíð verður haldin helgina 28.-30. júlí í ár. Dagskrá hátíðarinnar samanstendur af fernum tónleikum sem bjóða upp á kammerverk, kórverk og einsöngslög. Einnig er fyrirlestur á vegum Snorrastofu fastur liður á dagskrá hátíðarinnar ásamt hátíðarmessu sem fara mun fram sunnudaginn 30. júlí kl. 14. Fyrirlesari þetta árið er Friðrik Erlingsson, skáld og handritshöfundur, en hann…Lesa meira

true

Mikilvægt að taka þátt og sýna stuðning

Rætt við Guðrúnu Steinunni og Alexander Aron um Hinseginhátíð Vesturlands Guðrún Steinunn Guðbrandsdóttir og Alexander Aron Guðjónsson hafa undanfarnar vikur staðið í ströngu við að undirbúa Hinseginhátíð Vesturlands sem haldin er nú þriðja árið í röð. Hátíðin fer fram á Akranesi í ár og stendur yfir alla vikuna. Blaðamaður Skessuhorns leit við í gamla Landsbankahúsinu…Lesa meira

true

Skortur á þorski og verð hækkar

Nú um miðjan júlímánuð eru einungis 7%, eða 11.500 tonn, eftir af þorskkvóta ársins, sem er 168 þúsund tonn. Nýtt fiskveiðiár hefst sem fyrr 1. september. Mörg skip og bátar eru nú búin með kvóta sinn og bundin við bryggju. Þá voru strandveiðar eins og kunnugt er stöðvaðar í lok dags 11. júlí síðastliðinn þegar…Lesa meira