Hólabrú við sunnanvert Akrafjall er stærsta efnisnáman í sveitarfélaginu. Hér er horft til norðurs yfir efnistöku- og vinnslusvæðið. Ljósm. Skessuhorn/ mm

Viðvarandi ásókn í efnistöku við Hvalfjörð – fréttaskýring og myndir

Nokkrar stórar malarnámur eru við Hvalfjörð og er eftirspurn eftir efnistöku þar síst að minnka. Í aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar kemur fram að afmörkuð séu rúmlega 30 efnistökusvæði og stefnan er að takmarka efnistöku við núverandi staði, frekar en að opna ný námasvæði; til að vernda sem mest lítt raskað land í sveitarfélaginu. Stærstu námurnar eru í landi Bakka, Fellsenda, Innra-Hólms, Litlu-Fellsaxlar, Stóru-Fellsaxlar og Skorholts. Sé litið til aðalskipulags Hvalfjarðarsveitar ná efnistöku- og efnislosunarsvæði innan sveitarfélagsins yfir 166 hektara landsvæði þar sem leyfilegt er samkvæmt skipulagi að taka allt að átta milljón rúmmetra.

Viðvarandi ásókn í efnistöku við Hvalfjörð - fréttaskýring og myndir - Skessuhorn