Elías Kristjánsson hreinsar hér upp glerbrot úr skýlinu. Ljósm. mm

Skemmdarverk unnin á enn einu strætóskýlinu á Akranesi

Skömmu eftir miðnætti í gær voru brotnar þrjár af fimm rúðum í strætóskýli við Stillholt á Akranesi. Íbúar í nærliggjandi húsum hrukku við enda fylgdi rúðubrotinu mikill hávaði um klukkan 00:15. Elías Kristjánsson starfsmaður áhaldahúss Akraneskaupstaðar var í morgun að hreinsa upp glerbrotin. Hann segir að skemmdarvargarnir hafi notað rist úr götuniðurfalli til að brjóta rúðurnar. Skýlin eru reist úr stálgrind og fimm stórar perluglersrúður mynda skjólið.

Skemmdarverk unnin á enn einu strætóskýlinu á Akranesi - Skessuhorn