
Fyrsti áfangi verksins er nú tilbúinn. Ljósmyndir: Vegagerðin.
Endurnýjun hluta Borgarbrautar á undan áætlun
Í nýjasta tölublaði Framkvæmdafrétta Vegagerðarinnar kemur fram að stofnunin hafi að undanförnu, í samstarfi við Veitur, Rarik og Borgarbyggð, unnið að endurbótum og lagnagerð á um 550 m kafla Borgarbrautar í Borgarnesi, hinni gömlu þjóleið sem liggur niður að Borgarneshöfn. Framkvæmdir hófust í júlí á síðasta ári og verða verklok í síðasta lagi um miðjan október næstkomandi og hugsanlega eitthvað fyrr þar sem verkið hefur gengið hraðar en áætlað hafði verið. Um svokallaðan skilaveg er að ræða, en í því felst að eftir að þessum framkvæmdum lýkur mun Vegagerðin hætta umsjón með veginum og skila honum til sveitarfélagsins.