
Klukkan 2:30 í nótt voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar að 9 ára gömlum dreng í Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit. Útkallið var nokkru síðar ítrekað og aukið í F2 en drengurinn fannst svo heill á húfi um klukkan 6:30 í morgun.Lesa meira

Klukkan 2:30 í nótt voru björgunarsveitir kallaðar út til leitar að 9 ára gömlum dreng í Vatnaskógi í Hvalfjarðarsveit. Útkallið var nokkru síðar ítrekað og aukið í F2 en drengurinn fannst svo heill á húfi um klukkan 6:30 í morgun.Lesa meira

Í vikunni hitti lögregla mann á sautjánda ári sem var að aka á torfæruhjóli við hesthúsahverfið á Æðarodda í Hvalfjarðarsveit. Reyndist hjólið óskráð og hann án réttinda, hann vildi ekki framvísa skilríkjum og gaf upp rangt nafn. Hann á von á sekt fyrir að ljúga til nafns, að aka án réttinda og vera á óskráðu…Lesa meira

Norðurál hefur gert samning við íslenska álendurvinnslufyrirtækið Al um vinnslu á gjallsandi sem fellur til við framleiðslu álversins á Grundartanga. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Norðurál. Ný verksmiðja sem Alur hefur fest kaup á mun vinna sandinn svo mögulegt sé að endurnýta hann í ýmsa framleiðslu, t.a.m. sementsframleiðslu. Norðurál hefur um árabil unnið að…Lesa meira

Kjalarfólk í leikskólanum í Stykkishólmi bauð til sumarfagnaðar í Hólmgarði síðastliðinn mánudag. Þar var einkum verið að fagna nýjum kjarasamningi aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga sem undirritaður var að morgni laugardagsins 10. júní. Uppleggið var tónlist, sápukúlur og krítar og mætti fjöldi bæjarbúa til að fagna með kjalarfólki. Sólin lét ekki sjá sig en…Lesa meira

Sumarsýning Lisfélags Akraness verður opnuð í Bókasafni Akraness næstkomandi föstudag kl. 16. Sýningin sem ber heitið Gengið að göflunum verður uppi fram til 31. ágúst. „Tilurð sýningarinnar er vegna þess að Ingibjörg á Bókasafninu hafði samband við okkur í Listfélaginu í vor og bauð okkur að nýta áður lítið nýtta aðstöðu bókasafnsins sem eru gaflar…Lesa meira

Þótt Kristian Sævarsson sé aðeins 14 ára gamall Ólsari, og er nýbúinn að ljúka 9. bekk grunnskóla, lætur hann ekki nægja að læra heima þegar skóladeginum lýkur. Þá fer hann að búa til handfæraslóða í frítímanum með föður sínum sem er trillukarl á strandveiðum. Fréttaritari Skessuhorns hitti Kristian að máli. Hann segist hafa byrjað á…Lesa meira

Í skipulagslýsingu fyrir Jaðarsbakkasvæðið sem bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti í gær, kemur m.a. fram að hugmyndir um svæðið innihaldi ekki einungis hugmyndir um hótel, baðlón, heilsurækt og ferðatengda starfsemi, heldur einnig þéttingu íbúðabyggðar. Með tillögunum er nú opnað fyrir þann möguleika að byggja íbúðarhúsnæði á svæðinu. Ekki er tilgreint hvar sú íbúðabyggð gæti risið, t.d. hvort…Lesa meira

Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar samþykkti á fundi sínum í gær að hefja formlega endurskoðun á aðal- og deiliskipulagi Jaðarsbakka sem nær yfir 17,5 hektara svæði; „með það að markmiði að byggja upp miðstöð lýðheilsu, en þar er m.a. átt við byggingu hótels, baðlóns og íþróttaaðstöðu, auk skoðunar á möguleikum þess að þétta byggð. Lögð verður áhersla á…Lesa meira

Um hádegisbilið á þriðjudag í liðinni viku var erlendur ferðamaður að aka yfir brú á Skógarstrandarvegi í austurátt yfir Laxá við Emmuberg. Að sögn lögreglu sagðist hann hafa verið í símanum sínum þegar hann missti stjórn á bifreiðinni og hafnaði á hvolfi út í Laxá. Þegar lögreglan kom á staðinn var héraðslæknir kominn og var…Lesa meira

Leikhópurinn Lotta sótti Snæfellsnesið heim í síðustu viku og sýndi þar leikritið Gilitrutt. Lotta er á sýningarferð um landið í sumar og hefur skipulagt alls 57 sýningar á verkinu á um 40 mismunandi stöðum. Sunnudaginn 4. júní voru sýningar í Grundarfirði og Snæfellsbæ og mánudaginn 5. júní var sýning í Stykkishólmi, hvar fréttaritari Skessuhorns smellti…Lesa meira