Fréttir

true

Sóttu verðlaun fyrir línuklifur

Skagaklifrarar gerðu góða ferð í höfuðborgina í vikunni sem leið þegar bikarmeistaramót í línuklifri fór fram í Miðgarði í Garðabæ. Skagafólkið sótti tvenn gullverðlaun og ein silfurverðlaun á mótið. Beníta Líf Palladóttir kom, sá og sigraði í B-flokki kvenna með flottri frammistöðu og tók verðskuldað gull en hún náði hæsta punkti keppenda í úrslitaleið mótsins.…Lesa meira

true

Yfirfóru vita, baujur og dufl við vesturströndina

Undanfarnar vikur hefur varðskipið Freyja verið á hringferð um landið til að yfirfara vita og ljósdufl við strendur, sker og eyjar. Í liðinni viku var skipið fyrir ströndum Vesturlands, frá Skor á Breiðafirði að Kerlingaskeri í Skerjafirði. Við þessa vinnu er m.a. mældur straumur á rafgeymum, perur yfirfarnar, sólarsellur og veðurstöðvar lagaðar og fleira sem…Lesa meira

true

Komu tveimur smábátum til aðstoðar

Áhöfnin á varðskipinu Freyju kom skipstjórum tveggja fiskibáta til aðstoðar eftir að þeir höfðu lent í vandræðum þegar þeir voru á veiðum úti fyrir Rifi um hádegisbil á miðvikudag í liðinni viku. Annar báturinn varð vélarvana og þegar hinn ætlaði að veita honum aðstoð fékk sá tóg í skrúfuna. Varðskipið Freyja var skammt frá við…Lesa meira

true

Nætur-galin í Akranesvita næstkomandi laugardag

Laugardaginn 10. júní næstkomandi klukkan 16 verður sýningaropnun og tónleikar í Akranesvita. Nefnist sýningin Nætur-galin. „Þetta er einkasýning Angelu Árnadóttur Snæland en þau Benedikt Kristjánsson og Angela eru gift og eiga saman þrjú börn og búa við Háteig á Akranesi. Angela er listrænn verkefnastjóri barnastarfs sumartónleikanna í Skálholti. Hún hefur mikið unnið við að setja…Lesa meira

true

Fyrstu laxarnir komnir á land úr Norðurá

Laxveiðin hófst í Norðurá í Borgarfirði í morgunsárið og fljótlega voru fyrstu laxarnir komnir á land. Veiðimennirnir sem hafa opnað Norðurá undanfarin ár eru þeir Jón Þorsteinn Jónsson og Nuno Alexandre Bentim Servo. Þeir fengu báðir fiska í morgun og segjast alsælir. ,,Jón Þorsteinn veiddi þann fyrsta, en ég missti sjálfur lax snemma í morgun,…Lesa meira

true

Glæsileg vorsýning Fimleikafélags Akraness

Fimleikafélag ÍA á Akranesi er ört vaxtandi íþróttafélag og skipta iðkendur hundruðum. Félagið býr svo vel að geta æft og sýnt í nýju sérbúnu íþróttahúsi; Fimleikahúsinu við Vesturgötu. Í gær fór fram vorsýning félagsins. Þar sýndu iðkendur frá fimm ára aldri og þjálfarar þeirra afrakstur æfinga í vetur. Að þessu sinni var þema sýningarinnar Umhverfis…Lesa meira

true

Til hamingju með daginn sjómenn!

Skessuhorn óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn, en Sjómannadagurinn er í dag. Sjómannadagskrá er víða í dag í tilefni dagsins. Í Skessuhorni í liðinni viku var rætt við sjómenn víðsvegar um Vesturland. Bent er á að með vefáskrift að skessuhorn.is er hægt að lesa öll þessi viðtöl og skoða myndir sem þeim…Lesa meira

true

Pavel semur til tveggja ára við Tindastól

Gengið hefur verið frá samkomulagi um að Pavel Ermolinskij, sem nýlega leiddi Tindastól til frækilegs sigurs í Íslandsmótinu í körfubolta, verði áfram hjá félaginu. Um það var gerður samningur til tveggja ára og mun Pavel til viðbótar við meistaraflokkinn og Subway deildina einnig aðstoða með ýmsum hætti við unglingastarf Tindastóls bæði í karla- og kvennaflokkum.…Lesa meira

true

Lærir vélstjórn til að geta reddað sér sjálfur

Hinn 23 ára Sindri Steinn Axelsson útskrifaðist í vor sem vélstjóri frá Skipstjórnarskólanum en skólinn er hluti af Tækniskólanum í Reykjavík. Sindra Stein má bæði kalla Selfyssing og Dalamann, hann er alinn upp á Selfossi en móðir hans er frá Hundadal í Miðdölum og á fjölskyldan í dag jörðina Gröf, sem einnig er í Miðdölum.…Lesa meira

true

Velferð farþeganna í forgangi

Rætt við Sigmar Loga Hinriksson skipstjóra sem fluttur er aftur heim í Stykkishólm. Eitt af því sem breyst hefur í sjómennskunni síðustu árin er að nú eru til rafknúin skip til farþegaflutninga á sjó. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Sigmari Loga Hinrikssyni skipstjóra og fræddist um það og margt annað sem á daga hans hefur…Lesa meira