Dufl tekið inn til skoðunar og lagfæringa. Ljósmyndir: gsv.

Yfirfóru vita, baujur og dufl við vesturströndina

Undanfarnar vikur hefur varðskipið Freyja verið á hringferð um landið til að yfirfara vita og ljósdufl við strendur, sker og eyjar. Í liðinni viku var skipið fyrir ströndum Vesturlands, frá Skor á Breiðafirði að Kerlingaskeri í Skerjafirði. Við þessa vinnu er m.a. mældur straumur á rafgeymum, perur yfirfarnar, sólarsellur og veðurstöðvar lagaðar og fleira sem slíkri yfirferð tilheyrir.

Yfirfóru vita, baujur og dufl við vesturströndina - Skessuhorn