
Sindri Steinn Axelsson er Dalamaður og Selfyssingur.
Lærir vélstjórn til að geta reddað sér sjálfur
Hinn 23 ára Sindri Steinn Axelsson útskrifaðist í vor sem vélstjóri frá Skipstjórnarskólanum en skólinn er hluti af Tækniskólanum í Reykjavík. Sindra Stein má bæði kalla Selfyssing og Dalamann, hann er alinn upp á Selfossi en móðir hans er frá Hundadal í Miðdölum og á fjölskyldan í dag jörðina Gröf, sem einnig er í Miðdölum. Blaðamaður Skessuhorns sló á þráðinn til Sindra Steins og fékk að forvitnast um hlutverk vélstjóra og námið í Tækniskólanum.