
Til hamingju með daginn sjómenn!
Skessuhorn óskar sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með daginn, en Sjómannadagurinn er í dag. Sjómannadagskrá er víða í dag í tilefni dagsins. Í Skessuhorni í liðinni viku var rætt við sjómenn víðsvegar um Vesturland. Bent er á að með vefáskrift að skessuhorn.is er hægt að lesa öll þessi viðtöl og skoða myndir sem þeim fylgdi.
Alfons Finnsson og Rúnar Reynisson eru á meðylgjandi mynd um borð í Jökli SH sem Hrói hf gerði út á troll frá Ólafsvík. Myndin er ekki alveg ný, tekin árið 1985, á Olympus-OM10 myndavél, fyrstu alvöru myndavélina sem Alfons eignaðist. Í sjómannablaði Skessuhorn er m.a. rætt við sjóarann og ljósmyndarann Alfons og birtur fjöldi mynda sem hann hefur tekið í áranna rás á og við sjóinn í Ólafsvík.