
Jón Þorsteinn Jónsson með fyrsta laxinn úr Norðurá þetta árið. Ljósm. Nuno.
Fyrstu laxarnir komnir á land úr Norðurá
Laxveiðin hófst í Norðurá í Borgarfirði í morgunsárið og fljótlega voru fyrstu laxarnir komnir á land. Veiðimennirnir sem hafa opnað Norðurá undanfarin ár eru þeir Jón Þorsteinn Jónsson og Nuno Alexandre Bentim Servo. Þeir fengu báðir fiska í morgun og segjast alsælir. ,,Jón Þorsteinn veiddi þann fyrsta, en ég missti sjálfur lax snemma í morgun, rétt um klukkan átta. Hann fór hins vegar af hjá mér rétt fyrir löndun. Síðan setti ég í annan lax og landaði honum en við settum samtals í sex laxa í morgun og náðum þessum tveimur á Eyrinni,“ sagði Nuno Alexandre í samtali við Skessuhorn. Töluvert er af laxi á Eyrinni og lofar þessi byrjun bara góðu. Vatnið er gott í Norðurá þessa dagana eftir metrigningar í maí.