Fréttir

true

Afkoma Snæfellsbæjar langtum betri en væntingar voru um

Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2022 var tekinn til síðari umræðu í bæjarstjórn í gær og samþykktur samhljóða. Í reikningnum kemur fram að afkoma sveitarfélagsins reyndist jákvæð um 377 milljónir. „Rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var jákvæður um 377,4 milljónir króna. Útgjöld voru nánast á…Lesa meira

true

Fólki er bent á að skoða vel vegabréfin

Þjóðskrá sendi í vikunni út ábendingar til þeirra sem hyggjast leggja land undir fót og heimsækja útlönd á næstunni. Því fólki er bent á að skemma ekki fríið með gleymsku. Skoða þarf hvort vegabréfið sé ekki örugglega enn í gildi. Útrunnið vegabréf er alltaf ógilt vegabréf og þá er bent á að það er ekki…Lesa meira

true

Ungt fólk þjálfað til björgunarstarfa

Vonast til að starf Unglingadeildarinnar Glanna leiði af sér öflugt björgunarsveitarfólk Björgunarsveitirnar í Borgarfirði; Brák, Heiðar og Ok, hafa í vetur staðið að því sameiginlega verkefni að bjóða unglingum á svæðinu upp á björgunarsveitaræfingar. Hópurinn hittist annan hvern mánudag og er starfið ætlað unglingum í 8. bekk til fyrsta árs í framhaldsskóla. Blaðamaður Skessuhorns leit…Lesa meira

true

Vitundarvakning Alzheimer samtakanna – Munum leiðina

Fjólublár bekkur hefur verið settur niður fyrir utan Ráðhúsið í Stykkishólmi í tengslum við vitundarvakningu Alzheimer samtakanna, Munum leiðina. Fjólublár er alþjóðlegur litur Alzheimer sjúkdómsins og annarra heilabilunarsjúkdóma. Fram kemur á heimasíðu bæjarins að sambærilegir bekkir hafi verið settir niður víða um land í þeim tilgangi að vekja athygli á og auka umræðu og fræðslu…Lesa meira

true

Formleg opnun Running Tide á Breið – Myndasyrpa

Í tilefni af því að hafa lokið fyrsta fasa uppbyggingar Öldu, aðstöðu Running Tide á 1. hæð Breiðar nýsköpunarseturs á Akranesi, var haldin formleg opnun í gær. Kristinn Árni L. Hróbjartsson, framkvæmdastjóri Running Tide á Íslandi hélt kynningu á starfseminni en auk þess var óháð vísindaráð Running Tide á svæðinu sem og fleiri úr vísinda-…Lesa meira

true

Glaumur og gleði hjá útskriftarnemum MB

Nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar, sem útskrifast í vor frá skólanum, voru að dimmittera í dag. Krakkarnir sem klæddu sig upp í tilefni dagsins fóru um bæinn í morgunsárið, vöktu kennara með söng og glensi og borðuðu svo morgunverð með starfsfólki í skólanum. Eftir morgunmatinn var svo frumsýning á frábæru myndbandi útskriftarhópsins. Síðan var haldið í höfuðborgina…Lesa meira

true

Stéttarfélag Vesturlands veitir tvo styrki í verkefni í Dalabyggð

Á aðalfundi Stéttarfélags Vesturlands sem haldinn var 26. apríl síðastliðinn var samþykkt að veita tvo styrki í verkefni í Dalabyggð. Annar að upphæð 300 þúsund krónum til Silfurtúns en sá peningur fer í kaup á stólavog, þ.e. vigt með mjúku sæti, uppfellanlegum örmum og fótahvílum. Mun tilkoma stólavigtarinnar auðvelda mjög starfsemi á heimilinu. Hinn styrkurinn…Lesa meira

true

Stelpurnar eru tilbúnar í slaginn

ÍA leikur annað sumarið í röð í 2. deild kvenna í knattspyrnu að þessu sinni en í fyrra luku þær leik í fimmta sæti eftir úrslitakeppni efstu liða sem þá var nýbreytni. Í ár er breyting frá því í fyrra að nú í sumar er ellefu liða deild þar sem leikið er heima og að…Lesa meira

true

Segja verulega þörf á endurbótum varnargirðingar milli Snæfellsneshólfs og Vesturlandshólfs

Sauðfjárveikivarnir og sauðfjárveikivarnargirðingar voru til umræðu á fundi sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps, sem fram fór í gær. Einna helst var til umræðu sauðfjárveikivarnargirðing sem liggur í gegnum sveitarfélagið, á milli Snæfellsneshólfs og Vesturlandshólfs. Segir í fundargerð að veruleg þörf sé á endurnýjun og endurbótum við girðinguna og krefst sveitarstjórn frekara fjármagns í málaflokkinn sem fyrst…Lesa meira

true

Eyrarrósin afhent í átjánda sinn

Viðurkenningin Eyrarrósin er veitt árlega fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Er Eyrarrósin samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Icelandair. Í ár hlaut Eyrarrósina Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Var viðurkenningin afhent við hátíðlega athöfn á Hvammstanga í gær. Það var Aðalheiður Eysteinsdóttir sem tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð 2,5 milljónum króna. Alls…Lesa meira