Kærleiksbirnirnir skelltu sér í myndatöku. Ljósm. FB síða MB

Glaumur og gleði hjá útskriftarnemum MB

Nemendur Menntaskóla Borgarfjarðar, sem útskrifast í vor frá skólanum, voru að dimmittera í dag. Krakkarnir sem klæddu sig upp í tilefni dagsins fóru um bæinn í morgunsárið, vöktu kennara með söng og glensi og borðuðu svo morgunverð með starfsfólki í skólanum. Eftir morgunmatinn var svo frumsýning á frábæru myndbandi útskriftarhópsins. Síðan var haldið í höfuðborgina þar sem gleðin heldur áfram fram eftir degi.

Glaumur og gleði hjá útskriftarnemum MB - Skessuhorn