
Eyrarrósin afhent í átjánda sinn
Viðurkenningin Eyrarrósin er veitt árlega fyrir framúrskarandi menningarverkefni utan höfuðborgarsvæðisins. Er Eyrarrósin samstarfsverkefni Listahátíðar í Reykjavík, Byggðastofnunar og Icelandair. Í ár hlaut Eyrarrósina Menningarstarf í Alþýðuhúsinu á Siglufirði. Var viðurkenningin afhent við hátíðlega athöfn á Hvammstanga í gær. Það var Aðalheiður Eysteinsdóttir sem tók á móti viðurkenningunni og verðlaunafé að upphæð 2,5 milljónum króna.
Alls bárust 33 umsóknir um Eyrarrósina og hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2023 hvaðanæva að af landinu. Hvatningarverðlaunin voru nú veitt í annað sinn en þau eru veitt þremur verkefnum sem hafa verið starfrækt í þrjú ár eða skemur. Í ár hlutu hvatningarverðlaunin Alþjóðleg píanóhátíð á Vestfjörðum (Vesturbyggð), Hnoðri úr norðri (Akureyri) og Raddir úr Rangárþingi (Hellu). Hljóta þau hvert um sig verðlaunafé að upphæð 750 þúsund krónum auk gjafakorts frá Icelandair að upphæð 100 þúsund krónum.