Afkoma Snæfellsbæjar langtum betri en væntingar voru um

Ársreikningur Snæfellsbæjar og stofnana hans fyrir árið 2022 var tekinn til síðari umræðu í bæjarstjórn í gær og samþykktur samhljóða. Í reikningnum kemur fram að afkoma sveitarfélagsins reyndist jákvæð um 377 milljónir. „Rekstur Snæfellsbæjar kom mun betur út en fjárhagsáætlun hafði gert ráð fyrir og var jákvæður um 377,4 milljónir króna. Útgjöld voru nánast á pari við fjárhagsáætlun og það er eftirtektarvert að forstöðumenn stofnana Snæfellsbæjar eru að skila rekstri sinna stofnana enn eitt árið undir áætlun. Þetta er mjög ánægjulegt og eiga forstöðumenn hrós skilið fyrir hversu vel þeir reka sínar stofnanir og hversu vel þeir eru að fylgjast með fjárhag sinna eininga,“ segir í bókun bæjarstjórnar. Snæfellsbær hefur verið að greiða niður lán og minnka skuldir undanfarin ár. Á árinu 2022 voru engin ný lán tekin, þrátt fyrir töluverðar fjárfestingar, en þær numu alls 425 milljónum króna.

Afkoma Snæfellsbæjar langtum betri en væntingar voru um - Skessuhorn