Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Segja verulega þörf á endurbótum varnargirðingar milli Snæfellsneshólfs og Vesturlandshólfs

Sauðfjárveikivarnir og sauðfjárveikivarnargirðingar voru til umræðu á fundi sveitarstjórnar Eyja- og Miklaholtshrepps, sem fram fór í gær. Einna helst var til umræðu sauðfjárveikivarnargirðing sem liggur í gegnum sveitarfélagið, á milli Snæfellsneshólfs og Vesturlandshólfs. Segir í fundargerð að veruleg þörf sé á endurnýjun og endurbótum við girðinguna og krefst sveitarstjórn frekara fjármagns í málaflokkinn sem fyrst í ljósi aðstæðna í t.d. Miðfjarðarhólfi.

„Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps lýsir yfir miklum áhyggjum af ástandi sauðfjárveikivarnargirðinga í landinu og þar með talinni sauðfjárveikivarnargirðingu sem að afmarkar Snæfellsneshólf. Í ljósi þess að Snæfellsneshólf gegnir mikilvægu hlutverki sem líflambasölusvæði, m.a. í fjárskiptum, er brýnt að halda hólfinu hreinu og er girðingin lykilþáttur í því. Sveitarstjórn Eyja- og Miklaholtshrepps skorar á Matvælaráðuneyti og MAST að axla ábyrgð á hlutverki sínu í þessum málum og krefst frekara fjármagns í málaflokkinn sem fyrst í ljósi aðstæðna í t.d. Miðfjarðarhólfi,“ segir í bókun fundarins.

Segja verulega þörf á endurbótum varnargirðingar milli Snæfellsneshólfs og Vesturlandshólfs - Skessuhorn