Fréttir

true

Rangæsk hjón hljóta Landgræðsluverðlaunin

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra afhenti Landgræðsluverðlaunin á ársfundi Landgræðslunnar sem fram fór í Gunnarsholti. Verðlaunahafar voru bændurnir á Kaldbaki á Rangárvöllum, þau Sigríður Heiðmundsdóttir og Viðar Steinarsson og Landvernd, landgræðslu- og umhverfisverndarsamtök Íslands. Bændur á Kaldbaki hlutu verðlaunin fyrir öflugt og árangursríkt uppgræðslu- og landbótastarf á jörð sinni og fleiri svæðum á Rangárvöllum um áratuga skeið.…Lesa meira

true

Mikil hækkun fasteignamats milli ára

Heildarmat fasteigna á Íslandi hækkar að meðaltali um 19,9% frá yfirstandandi ári og verður í heild 12.627 milljarðar króna, samkvæmt nýju fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir árið 2023. Er þetta mesta hækkun fasteignamats frá hruni. Hægt er að sjá fyrirhugað mat á www.skra.is frá og með 1. júní ár hvert og það tekur svo gildi 31.…Lesa meira

true

Kynning á svæðismarki Snæfellsness fór fram í Breiðabliki

Síðastliðinn laugardag bauð Svæðisgarður Snæfellsness til veislu í Breiðabliki. Kynnt var svokallað Svæðismark Snæfellsness fyrir sveitastjórnum, sveitarstjórum og öðrum hagaðilum. Svæðismark felur í sér vinnu við hönnum og framsetningu á því hvað gerir Snæfellsnes sérstakt – hvert DNA Snæfellsness er, ef svo má segja. Svæðisgarðurinn er skilgreindur sem fjölþætt samstarf fyrirtækja, sveitarfélaga og félagasamtaka á…Lesa meira

true

Jóhanna tekin við starfi umhverfisstjóra LbhÍ

Jóhanna Gísladóttir hóf störf sem umhverfisstjóri við Landbúnaðarháskóla Íslands í vor. Hún hefur nýlokið sameiginlegu doktorsprófi í umhverfis- og auðlindafræði frá stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands og landfræði frá Stokkhólmsháskóla. Jóhanna sinnti stundakennslu samhliða námi bæði í umhverfis- og auðlindafræði sem og stjórnmálafræði við Háskóla Íslands og í sjávarbyggðafræði við Háskólasetur Vestfjarða. Áður hefur hún stundað meistaranám…Lesa meira

true

Skýrslu um blóðtöku úr fylfullum hryssum

Starfshópur sem Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra skipaði í lok árs 2021 til að skoða starfsemi, regluverk, eftirlit og löggjöf í kringum blóðtöku úr fylfullum hryssum hefur skilað skýrslu sinni. Í henni er rýnt í  umfang starfseminnar, eftirlit, dýravelferð, löggjöf, sjónarmið hagaðila og tillögur settar um framhaldið. Í skýrslunni kemur fram að lagaumgjörðin um blóðtöku úr fylfullum…Lesa meira

true

Nýr rekstraraðili hjúkrunarrýmis

Samkvæmt samkomulagi Stykkishólmsbæjar og heilbrigðisráðuneytisins frá 8. febrúar sl. mun Heilbrigðisstofnun Vesturlands taka við rekstri 15 hjúkrunarrýma dvalarheimilisins í dag, 1. júní, og annast rekstur þeirra í húsnæðinu að Skólastíg 14a uns flutt verður í endurgert húsnæði HVE að Austurgötu 7. Kristín Hannesdóttir hjúkrunarfræðingur sem veitt hefur dvalarheimilinu í Stykkishólmi forstöðu hefur þegið starf hjá…Lesa meira

true

Tekur smá tíma fyrir nýjan garðyrkjustjóra að komast inn í hlutina

Jón Arnar Sverrisson tók við í byrjun apríl sem garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar en starfið var auglýst á síðasta ári. Alls sóttu átta manns um starfið og var hann ráðinn í lok febrúar en Jón Arnar var í fastri vinnu fyrir norðan á Dalvík, þar sem hann losnaði svo í byrjun apríl, en hann hefur búið þar…Lesa meira

true

Skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar sér fram á spennandi breytingar

Sigfríður Björnsdóttir er skólastjóri Tónlistarskóla Borgarfjarðar. Hún hefur sinnt starfinu síðastliðinn vetur og er sterkar rætur í Borgarfjörðinn. Blaðamaður hitti Sigfríði yfir kaffibolla á sólríkum degi í tómum tónlistarskólanum þar sem sumarfrí var hafið hjá nemendum og flestum kennurum. ,,Ég er ættuð að norðan í báðar ættir en hef alltaf búið í Reykjavík. Ég byrjaði…Lesa meira

true

Laxinn farinn að sjást víða í ánum

„Já, við erum búnir að sjá laxa í Norðurá, sáum þá um helgina, en veiðin hefst 4. júní að morgni,“ segir Brynjar Þór Hreggviðsson við í Norðurá í Borgarfirði. „Það voru laxar á Stokkhylsbrotinu allavega tveir,“ bætti Brynjar þegar við heyrðum í honum þar sem hann var staddur við ána í veðurblíðunni um helgina. Nú…Lesa meira

true

Álagning opinberra gjalda á einstaklinga fyrir 2021

Ríkisskattstjóri hefur lokið álagningu opinberra gjalda á einstaklinga. Álagningin 2022 tekur mið af tekjum einstaklinga árið 2021 og eignastöðu þeirra 31. desember 2021. Helstu niðurstöður eru eftirfarandi: Fjöldi framteljenda er 317.567 og fjölgar um 5.056 á milli ára. Skattskyldar tekjur framteljenda eru 2.005 ma.kr. og skila samtals 248 ma.kr. í tekju- og fjármagnstekjuskatt til ríkissjóðs og…Lesa meira