Fréttir

true

Tveir nýir leikskólastjórar

Búið er að ganga frá ráðningu leikskólastjóra við leikskólana Teigasel og Vallarsel á Akranesi. Íris Guðrún Sigurðardóttir hefur verið ráðin leikskólastjóri Teigasels og Vilborg Valgeirsdóttir leikskólastjóri Vallarsels. Íris Guðrún tekur við af Margréti Þóru Jónsdóttur og Vilborg af Brynhildi Björgu Jónsdóttur. Á vefsíðu Akraneskaupstaðar er þeim óskað farsældar í starfi og því fagnað að þær…Lesa meira

true

Fékk aðsvif við að hræra í skít

Í síðustu viku var Styrmir Gíslason bóndi á Kötlulandi, við Reykhóla, að hræra upp í áburðarkjallara í fjárhúsunum hjá sér. Með honum voru tveir nágrannar hans, Tómas bóndi á Reykhólum og Gústaf Jökull bóndi á Miðjanesi, en frá þessu atviki er greint á vef Reykhólahrepps. Þegar hrært er í skít, ekki síst á þessum árstíma,…Lesa meira

true

Skoðunarmánuður ferðavagna er í maí

Maí er nýr skoðunarmánuður fyrir húsbíla, hjólhýsi, fellihýsi, tjaldvagna, bifhjól, létt bifhjól í flokki II og fornökutæki. Samgöngustofa vekur athygli á að með samþykkt reglugerðar nr. 414/2021, um skoðun ökutækja, hafa ökutæki í ákveðnum ökutækja- og notkunarflokkum fengið nýjan skoðunarmánuð. Skal nú og framvegis færa þau til skoðunar eins og þau hefðu 5 í endastaf…Lesa meira

true

Strandveiðar hófust í morgun

Í morgun hófst strandveiðitímabilið við landið. Almennt er búist við mikilli þátttöku í veiðunum og að um eða yfir 700 bátar haldi til veiða. Meðfylgjandi mynd var tekin yfir höfnina á Arnarstapa í gærkvöldi, en þangað voru komnir eða væntanlegir um 40 bátar. Á þessum fyrsta degi strandveiða reyndist hagstætt að halda til á Stapanum…Lesa meira

true

Atvinnumálaþing fór fram í Borgarnesi

Á þriðjudag í liðinni viku stóð atvinnu-, markaðs- og menningarnefnd Borgarbyggðar fyrir þingi um atvinnumál. Markmið þingsins var að skapa vettvang fyrir fólk úr atvinnulífinu og áhugafólk um atvinnulíf í sveitarfélaginu til að fræðast um viðfangsefnið. Gestum gafst tækifæri til þess að hlýða á nokkur erindi sem fjölluðu beint og óbeint um atvinnumál í Borgarbyggð,…Lesa meira

true

Starfmenntanám í garðyrkju formlega slitið frá LbhÍ

Undir lok síðustu viku var skrifað undir samkomulag þriggja ráðuneyta um rekstur starfsmenntanáms í garðyrkju og skyldum greinum. Í samkomulaginu, sem mennta- og barnamálaráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynntu síðastliðinn föstudag mun Fjölbrautaskóli Suðurlands nú bjóða öllu starfsfólki Landbúnaðarháskóla Íslands, sem hefur sinnt kennslu og tengdum störfum á Reykjum, ráðningu frá 1. ágúst næstkomandi.…Lesa meira

true

Unnu til gull- og silfur verðlauna á Íslandsmótinu í fitness

Íslandsmótið í fitness, IFBB, var haldið í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri 22. apríl síðastliðinn. Alls stigu 42 keppendur á svið og var keppnin jöfn og hörð í mörgum flokkum. Keppt var í módelfitness, fitness karla og kvenna, vaxtarrækt, sportfitness og wellness. Tvær borgfiskar konur skelltu sér norður og tóku þátt í mótinu og stóðu sig…Lesa meira

true

Faxatorgi lokað á ný í dag

Í dag, mánudaginn 2. maí, verður Faxatorgi á Akranesi lokað fyrir allri umferð. Ætlunin er að lokunin standi yfir í um það bil tvær vikur. Þetta kemur fram á vefsíðu Akraneskaupstaðar og er vegna frágangs á hringtorgi. Lokun á Faxatorgi hefur talsverð áhrif á umferð um hluta bæjarins og því þurfa vegfarendur að skipuleggja ferðir…Lesa meira

true

Hljóðið í stimplinum gerir kosninguna ekki lengur leynilega

Einstaklingur sem ekki verður heima á kjördag 14. maí næstkomandi gerði sér ferð í vikunni sem leið og kaus utan kjörfundar hjá sýslumanni hér á Vesturlandi. Sagði hann að framkvæmd utankjörstaðar kosningarinnar hafi verið ágæt, nema að einu leyti. „Boðið er uppá stimpil með bókstöfum flokkanna. Það heyrist greinilega þegar stimpillinn er notaður. Þar með…Lesa meira

true

Baráttu- og hátíðarfundur stendur nú yfir á Akranesi

Dagskrá stendur nú yfir á vegum Verkalýðsfélags Akraness í tilefni 1. maí. Kröfuganga fór í fylgd lögreglu frá nýjum skrifstofum VLFA að Þjóðbraut 1 klukkan 14, gengið var út Þjóðbraut og til baka eftir Dalbraut, en samkoman fer fram í sal Félags eldri borgara. Trommusveit tónlistarskólans sló taktinn. Meðal dagskrárliða er hátíðarræða Vilhjálms Birgissonar formanns…Lesa meira