Svifið yfir Faxatorg sl. föstudag. Ljósm. mm.

Faxatorgi lokað á ný í dag

"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í dag, mánudaginn 2. maí, verður Faxatorgi á Akranesi lokað fyrir allri umferð. Ætlunin er að lokunin standi yfir í um það bil tvær vikur. Þetta kemur fram á vefsíðu Akraneskaupstaðar og er vegna frágangs á hringtorgi. Lokun á Faxatorgi hefur talsverð áhrif á umferð um hluta bæjarins og því þurfa vegfarendur að skipuleggja ferðir sínar með tilliti til þessa.\r\n\r\nHjáleiðir fyrir akandi vegfarendur verða eftirfarandi:\r\n
\r\n \t
Fyrir þá sem aka austur Skagabraut er hjáleið um Jaðarsbraut upp Höfðabraut / Skarð að Garðabraut.
\r\n \t
Akandi vegfarendur á leið norður Kirkjubraut og á leið austur um vestari hluta Stillholts, eru beðnir um að fara Kalmansbraut og Esjubraut. Hægt verður að nýta Dalbraut sem hjáleið einnig, en greiðfærara verður að fara um Kalmansbraut og Esjubraut.
\r\n \t
Vegfarendur á leið niður Þjóðbraut fara í vestur um Esjubraut frá Esjutorgi eða í austur um Innnesveg.
\r\n \t
Akandi vegfarendur á leið um Garðabraut í vestur hafa hjáleið um Skarðsbraut að Innnesvegi og um Höfðabraut / Skarð um Jaðarbraut að Faxabraut og eða Skagabraut.
\r\n \t
Akandi vegfarendur á leið um Faxabraut frá hafnarsvæðinu hafa hjáleið um Jaðarsbraut um Höfðabraut / Skarð að Garðabraut eða um Jaðarsbraut að Skagabraut.
\r\n \t
Gangandi- og hjólandi vegfarendur komast um svæðið, en gæta verður varúðar og vera í fjarlægð frá vinnusvæðinu.
\r\n
\r\nÞað hefur mikil áhrif á umferð að loka Faxatorgi. Íbúar eru hvattir til að skipuleggja ferðir sínar með þeim hætti að umferð gangi samt sem áður greiðlega á þeim götum sem greiðfært er um.",
"innerBlocks": []

Faxatorgi lokað á ný í dag - Skessuhorn