Baráttu- og hátíðarfundur stendur nú yfir á Akranesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Dagskrá stendur nú yfir á vegum Verkalýðsfélags Akraness í tilefni 1. maí. Kröfuganga fór í fylgd lögreglu frá nýjum skrifstofum VLFA að Þjóðbraut 1 klukkan 14, gengið var út Þjóðbraut og til baka eftir Dalbraut, en samkoman fer fram í sal Félags eldri borgara. Trommusveit tónlistarskólans sló taktinn. Meðal dagskrárliða er hátíðarræða Vilhjálms Birgissonar formanns VLFA og kórsöngur Yms undir stjórn Sigríðar Elliðadóttur. Kaffiveitingar eru í boði en það var Línudanshópur Feban sem að þessu sinni fékk það verkefni að reiða fram veitingar, sem sannarlega voru afar glæsilegar eins og sjá má á myndunum.\r\n\r\nVerkalýðsfélagið bauð einnig upp á bíósýningar fyrir börnin. Fram kom í máli Vilhjálms að upppantað hefði verið á báðar sýningarnar í Bíóhöllinni.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"53035,53036,53037,53038\"]",
"innerBlocks": []
}
Baráttu- og hátíðarfundur stendur nú yfir á Akranesi - Skessuhorn