Atvinnumálaþing fór fram í Borgarnesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Á þriðjudag í liðinni viku stóð atvinnu-, markaðs- og menningarnefnd Borgarbyggðar fyrir þingi um atvinnumál. Markmið þingsins var að skapa vettvang fyrir fólk úr atvinnulífinu og áhugafólk um atvinnulíf í sveitarfélaginu til að fræðast um viðfangsefnið. Gestum gafst tækifæri til þess að hlýða á nokkur erindi sem fjölluðu beint og óbeint um atvinnumál í Borgarbyggð, fá innsýn í það sem er í gangi og snertir m.a. nýsköpun og menntun ásamt því að velta fyrir sér framtíðarsýninni og atvinnutækifærum á landsbyggðinni. Þinghaldinu lauk með pallborðsumræðum og spurningum var svarað úr sal, en pallborðinu stýrði Bárður Örn Gunnarsson frá Hvanneyri. Kynnir á málþinginu var Þórdís Sif Sigurðardóttir sveitarstjóri.\r\n\r\nÞingið var tekið upp og er hægt að nálgast upptöku af því á vefsíði Borgarbyggðar.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-53030\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/05/Atvinnumalathing-for-fram-i-Borgarnesi_2-600x450.jpg\" alt=\"\" />",
  "innerBlocks": []
}
Atvinnumálaþing fór fram í Borgarnesi - Skessuhorn