Starfmenntanám í garðyrkju formlega slitið frá LbhÍ

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undir lok síðustu viku var skrifað undir samkomulag þriggja ráðuneyta um rekstur starfsmenntanáms í garðyrkju og skyldum greinum. Í samkomulaginu, sem mennta- og barnamálaráðherra og háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra kynntu síðastliðinn föstudag mun Fjölbrautaskóli Suðurlands nú bjóða öllu starfsfólki Landbúnaðarháskóla Íslands, sem hefur sinnt kennslu og tengdum störfum á Reykjum, ráðningu frá 1. ágúst næstkomandi. Ráðuneytin tvö ásamt fjármála- og efnahagsráðuneytinu hafa einnig ákveðið að umsýsla Reykjatorfunnar og mannvirkja fyrrum Garðyrkjuskólans á Reykjum í Ölfusi flytjist frá Landbúnaðarháskóla Íslands til Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna við upphaf haustannar 2022. Það er sögð forsenda þess að hægt sé að nýta svæðið á nýjum vettvangi undir námið.\r\n\r\nSkipaður verður starfshópur undir forystu mennta- og barnamálaráðuneytisins um framtíðarfyrirkomulag og nýtingu á Reykjum og eflingu starfsnáms, rannsókna og nýsköpunarstarfs. Í þeirri vinnu verður jafnframt skoðað hvernig tryggja megi tengingu námsins við atvinnulífið og ákveðið sjálfstæði gagnvart FSU. „Fyrirhuguð uppbygging á Reykjum mun efla starfsnámið og skapa brú inn á nám á háskólastigi. Óskað verður eftir fulltrúum frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Fjölbrautaskóla Suðurlands, Samtökum sunnlenskra sveitarfélaga og Bændasamtökum Íslands auk fulltrúa frá báðum ráðuneytum. Gert er ráð fyrir að tillögur starfshópsins liggi fyrir í desember 2022,“ segir í tilkynningu frá ráðuneytinu.\r\n\r\nInnritun í starfsnám í garðyrkju og skyldum greinum endurspeglar mikinn áhuga á náminu og hafa 108 þegar innritað sig fyrir næsta haust.",
  "innerBlocks": []
}
Starfmenntanám í garðyrkju formlega slitið frá LbhÍ - Skessuhorn