Á Arnarstapa seint í gærkvöldi. Ljósm. af.

Strandveiðar hófust í morgun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í morgun hófst strandveiðitímabilið við landið. Almennt er búist við mikilli þátttöku í veiðunum og að um eða yfir 700 bátar haldi til veiða. Meðfylgjandi mynd var tekin yfir höfnina á Arnarstapa í gærkvöldi, en þangað voru komnir eða væntanlegir um 40 bátar. Á þessum fyrsta degi strandveiða reyndist hagstætt að halda til á Stapanum því nú er norðaustan kaldi á norðanverðu Snæfellsnesi og fáir litlir bátar á sjó í brælu á Breiðafirði. Um 25 bátar héldu til veiða frá Arnarstapa í morgun, en þar er nú þokkalegasta veður, gola og ágæt skilyrði til veiða.",
  "innerBlocks": []
}
Strandveiðar hófust í morgun - Skessuhorn