Fréttir

true

Sælureitur í Árbliki opnaður á sumardaginn fyrsta

Sveitarfélagið Dalabyggð lét taka út nýtingu félagsheimila í héraðinu á síðasta ári og í kjölfarið bauð það félagsheimilið Árblik til leigu. Tvær röskar konur í Miðdölunum tóku húsið að sér og ætla að reka þar tjaldsvæði og kaffihús, auk þess sem húsið verður áfram til útleigu vegna viðburða, eins og verið hefur. Þetta eru þær…Lesa meira

true

Rusla Bingó með umhverfisboðskap

Fyrsta skóladaginn eftir páskafrí lék veðrið við nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar, sem er með starfsstöðvar á Varmalandi, Hvanneyri og á Kleppjárnsreykjum. Ákveðið hafði verið að nýta veðurblíðuna til hins ýtrasta. Nemendur leystu af hólmi fjölbreytt og skemmtileg verkefni, þar sem þeir urðu um leið margs vísari. Til að mynda var farið var í Rusla-Bingó þar sem…Lesa meira

true

Tíndu rusl á stóra plokkdeginum

Vinkonurnar Guðrún Ósk og Mýrún Lotta nýttu stóra plokkdaginn, sem var 24. apríl síðastliðinn, í að tína upp rusl úr fjörunni á Framnesi í Grundarfirði. Þær höfðu þó smá tíma til að stilla sér upp fyrir ljósmyndara áður en þær héldu áfram að tína upp gamalt plast og rusl úr fjörunni.Lesa meira

true

Gáfu heilsugæslunni í Búðardal og á Reykhólum ómtæki til bráðanotkunar

Um miðja síðustu viku gáfu nokkur félagasamtök Heilsugæslunni í Búðardal og á Reykhólum ómtæki sem hægt er að nota í bráðatilfellum, en einnig á stöðinni til aðstoðar við greiningar á heilsugæslunni sjálfri. Tækið hentar til að skoða á hraðan hátt vandamál í lungum, gallsteina, skoða blöðrurúmmál og til að finna æðar, sem og til að…Lesa meira

true

Þrjú hundruð þúsund króna munur á tekjum milli sveitarfélaga

Ef tölur um meðaltekjur einstaklinga í sveitarfélögum á Vesturlandi eru skoðaðar á vef Hagstofu Íslands kemur ýmislegt athyglisvert í ljós. Á meðfylgjandi töflu sjást meðaltekjur árin 2019 og 2020 og eru þær byggðar á skattframtölum skattskyldra einstaklinga 16 ára og eldri á svæðinu. Um heildartekjur er að ræða, þ.e. samtölu atvinnutekna, fjármagnstekna og annarra tekna.…Lesa meira

true

Nýr samstarfssamningur um Norðurálsmótið á Akranesi

Akraneskaupstaður og Knattspyrnufélag ÍA undirrituðu nýjan samstarfssamning um Norðurálsmótið til fimm ára síðastliðinn sunnudag á Jaðarsbökkum, skömmu fyrir leik ÍA og Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu. Með þessum nýja samningi er lagður grundvöllur að áframhaldandi stuðningi bæjarfélagsins við mótið í formi afnota af mannvirkjum og opnum svæðum auk styrkveitingar til Knattspyrnufélags ÍA. Gert…Lesa meira

true

Hunangsflugur og Villikettir í Grundaskóla

Söngleikurinn Hunangsflugur og Villikettir var frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi síðasta fimmtudag, á sumardaginn fyrsta. Nemendur í 10. bekk úr árgangi 2006 sem útskrifast í vor úr Grundaskóla hafa undanfarnar vikur æft af miklum móð en sýningin er kveðjuverkefni þeirra. Söngleikurinn var fyrst frumsýndur árið 2005, fyrir 17 árum síðan og er saminn og leikstýrt…Lesa meira

true

Eftirlit verður aukið með blóðtökuhryssum

Matvælastofnun hefur gefið út skýrslu um eftirlit með velferð hryssna sem notaðar eru til í blóðtöku til vinnslu afurða. „Tíðni eftirlits með blóðtökubæjum er mun hærra en í öðru hrossahaldi en minna er um alvarleg frávik. Hörð viðurlög við alvarlegum frávikum við velferð blóðtökustóða, sem beitt hefur verið á seinni árum, virðast hafa átt mikinn…Lesa meira

true

Með vorinu færist aukið líf í hafnirnar

Samhliða sumarkomunni og batnandi veðri færist aukið líf í smábátahafnirnar við landið. Víða eru menn því farnir að huga að bátum sínum og veiðarfærum. Margir halda á sjóinn einungis til afþreyingar, en aðrir setja stefnuna á strandveiðar sem hefjast mánudaginn 2. maí næstkomandi. Meðfylgjandi myndir eru frá Akraneshöfn um liðna helgi. Vorblíðan lék við mannskapinn…Lesa meira

true

Þýskir krakkar í heimsókn í Brekkó

Í gær komu til landsins um 20 nemendur á aldrinum ellefu til tólf ára frá borginni Berlín í Þýskalandi og voru þau komin seinni partinn á Akranes þar sem tekið var á móti þeim með viðhöfn. Munu þau gista á íslenskum heimilum barna í 6. bekk Brekkubæjarskóla á meðan á dvöl þeirra stendur en heimför…Lesa meira