Meðfylgjandi mynd er frá undirrituninni en hluti bæjarstjórnar og embættismanna bæjarins var viðstaddur. Ljósm. kfia

Nýr samstarfssamningur um Norðurálsmótið á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Akraneskaupstaður og Knattspyrnufélag ÍA undirrituðu nýjan samstarfssamning um Norðurálsmótið til fimm ára síðastliðinn sunnudag á Jaðarsbökkum, skömmu fyrir leik ÍA og Víkings í Bestu deild karla í knattspyrnu. Með þessum nýja samningi er lagður grundvöllur að áframhaldandi stuðningi bæjarfélagsins við mótið í formi afnota af mannvirkjum og opnum svæðum auk styrkveitingar til Knattspyrnufélags ÍA. Gert er ráð fyrir um tvö þúsund þátttakendum á hverju ári á mótið. Fram kemur á FB síðu félagsins að það sé markmið samningsaðila að mótið laði að þúsundir annarra gesta til bæjarins og verði þannig góð kynning fyrir bæjarfélagið og knattspyrnuna á Akranesi.",
  "innerBlocks": []
}
Nýr samstarfssamningur um Norðurálsmótið á Akranesi - Skessuhorn