
Fulltrúar félagasamtakanna sem gáfu tækið stilltu sér upp við nýja sjúkrabílinn í tilefni dagsins. Á myndinni eru: Sveinn Ragnarsson, Andrea Björnsdóttir, Berglind Vésteinsdóttir, Steinunn Lilja Ólafsdóttir, Erna K. Hjaltadóttir, Þórður Ingólfsson, Jón Egill Jónsson, Guðmundur Ólafsson, Ingvar Samúelsson og Guðmundur Freyr Geirsson. Á myndina vantar fulltrúa Kvenfélagsins Kötlu. Ljósm. bj.
Gáfu heilsugæslunni í Búðardal og á Reykhólum ómtæki til bráðanotkunar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um miðja síðustu viku gáfu nokkur félagasamtök Heilsugæslunni í Búðardal og á Reykhólum ómtæki sem hægt er að nota í bráðatilfellum, en einnig á stöðinni til aðstoðar við greiningar á heilsugæslunni sjálfri. Tækið hentar til að skoða á hraðan hátt vandamál í lungum, gallsteina, skoða blöðrurúmmál og til að finna æðar, sem og til að sjá púls í endurlífgun. Það kemur ekki í stað stærri ómtækja, sem geta skoðað nákvæmara og stærra svæði, þannig að enn sem áður þarf að senda sjúklinga í flestar ómskoðanir annað, en tækið er engu að síður góð viðbót við þau greiningartæki sem nauðsynleg eru á heilsugæslustöð.\r\n\r\nÞórður Ingólfsson heimilislæknir tók við gjöfinni og sýndi svo í framhaldinu hvernig tækið virkar á handlegg eins af bráðaliðum heilsugæslustöðvarinnar. Tækið sjálft er á stærð við farsíma og sendir gögn í spjaldtölvu sem sýnir ómunina. Það er einkar nett og tekur ekki mikið pláss, sem gerir það að verkum að það hentar einstaklega vel til bráðanotkunar.\r\n\r\nKvenfélagið Fjólan, Kvenfélagið Katla, Handverksfélagið Assa, Lionsklúbbur Reykhóla og Lionsklúbbur Búðardals færðu heilsugæslunni gjöfina og voru fulltrúar flestra félaganna viðstaddir afhendingu.",
"innerBlocks": []
}