
Margir nýttu tækifærið og fengu sér hressingu í Árbliki á sumardaginn fyrsta.
Sælureitur í Árbliki opnaður á sumardaginn fyrsta
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Sveitarfélagið Dalabyggð lét taka út nýtingu félagsheimila í héraðinu á síðasta ári og í kjölfarið bauð það félagsheimilið Árblik til leigu. Tvær röskar konur í Miðdölunum tóku húsið að sér og ætla að reka þar tjaldsvæði og kaffihús, auk þess sem húsið verður áfram til útleigu vegna viðburða, eins og verið hefur. Þetta eru þær Guðrún Esther Jónsdóttir í Miðskógi og Sigurdís E.L. Sigursteinsdóttir í Neðri Hundadal. Þær opnuðu með pompi og prakt á sumardaginn fyrsta, þar sem í boði var kökuhlaðborð og kjötsúpa og var vel mætt að sögn Estherar.\r\n\r\nTjaldsvæðið verður öllum helstu kostum búið sem góð tjaldstæði þurfa að hafa upp á að bjóða. Meðal annars aðstöðu til að losa affall af húsbílum, eldunaraðstöðu, sturtur, salerni og rafmagn, auk útsýnisins út Hvammsfjörðinn, sem er dásamlegt. Því er nafngiftin Sælureitur nokkuð lýsandi.",
"innerBlocks": []
}