{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fyrsta skóladaginn eftir páskafrí lék veðrið við nemendur Grunnskóla Borgarfjarðar, sem er með starfsstöðvar á Varmalandi, Hvanneyri og á Kleppjárnsreykjum. Ákveðið hafði verið að nýta veðurblíðuna til hins ýtrasta. Nemendur leystu af hólmi fjölbreytt og skemmtileg verkefni, þar sem þeir urðu um leið margs vísari. Til að mynda var farið var í Rusla-Bingó þar sem finna þurfti ákveðna flokka af rusli þar sem nemendur hlutu jafnframt fræðslu um flokkun og endurnýtingu efniviða. Meðfylgjandi er mynd sem starfsfólk skólans sendi Skessuhorni.\r\n\r\nÞess er einnig getið í tilkynningu til Skessuhorns að árshátíð Varmalandsdeildar skólans var stórgóð. Sett var upp Ávaxtakarfan eftir Kristlaugu Maríu Sigurðardóttur. Fengnir voru búningar að láni auk þess sem einnig voru saumaðir búningar í skólanum.",
"innerBlocks": []
}