Hljómsveitin Villikettir í sýningunni. Ljósm. vaks

Hunangsflugur og Villikettir í Grundaskóla

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Söngleikurinn Hunangsflugur og Villikettir var frumsýndur í Grundaskóla á Akranesi síðasta fimmtudag, á sumardaginn fyrsta. Nemendur í 10. bekk úr árgangi 2006 sem útskrifast í vor úr Grundaskóla hafa undanfarnar vikur æft af miklum móð en sýningin er kveðjuverkefni þeirra. Söngleikurinn var fyrst frumsýndur árið 2005, fyrir 17 árum síðan og er saminn og leikstýrt af þremur kennurum skólans, þeim Flosa Einarssyni, Einari Viðarssyni og Gunnari Sturlu Hervarssyni.\r\n\r\nÝmislegt hefur gengið á í undirbúningi hópsins fyrir sýninguna og þurfti til að mynda að fresta henni á dögunum vegna inflúensufaraldurs innan leikhópsins. Nokkrum klukkustundum fyrir frumsýninguna kom í ljós að Benedikt Ísar Björgvinsson sem leikur í söngleiknum hafði ökklabrotnað í knattspyrnuleik með ÍA kvöldið áður. Benedikt leysti það verkefni án vandræða en hann mætti á frumsýninguna með gifs á hægra fæti og hækjur sér til stuðnings.\r\n\r\nBlaðamaður Skessuhorns skellti sér á sýninguna síðasta mánudagskvöld og með í för voru börnin, sem eru átta og tólf ára. Skemmtum við okkur konunglega yfir sýningunni sem tók rétt um tvo klukkutíma og óhætt að mæla með því hún er skemmtileg og fjörug allan tímann. Sögutíminn er í denn í kringum 1970 á Akranesi og fjallar í stuttu máli um tvær hljómsveitir, Hunangsflugurnar og Villikettina, sem eru að berjast um að vera aðalnúmerið á Stúkuballinu. Inn í þetta fléttast ástir unglinganna, stöðubarátta, vonbrigði, afglöp og upprisa. Þrjú aðalhlutverk eru í sýningunni: Gunnar Smári Sigurjónsson leikur hinn hressa Bóbó og vakti mikla kátínu nánast í hvert sinn sem hann tók til máls. Anna María Sigurðardóttir leikur gelluna Júlíu, var hún mjög örugg í sínum leik og með fallega söngrödd. Þá lék Tómas Týr Tómasson töffarann Elvar Aron og leysti það með hreint ágætum. Einnig verður að hrósa öðrum leikurum fyrir góðan leik og skemmtilega sviðsframkomu og gaman að sjá hvað geislaði af öllum þeim krökkum sem tóku þátt í sýningunni. Þá má ekki gleyma tónlistinni sem skipar stóran sess í sýningunni og er hún stórskemmtileg og nær tíðarandanum ágætlega. Þess má geta að hægt er að finna öll lögin úr sýningunni frá árinu 2005 ásamt nokkrum öðrum söngleikjum Grundaskóla á Spotify. Því er um að gera fyrir Skagamenn og nærsveitunga að kíkja í Grundaskóla og upplifa skemmtilega kvöldstund og styðja við þessa öflugu krakka.\r\n\r\nNæstu sýningar eru á morgun fimmtudag og á föstudag og hefjast klukkan 20 báða dagana.",
  "innerBlocks": []
}