Fréttir

true

Boltinn rúllaður af stað

Íslandsmótið í efstu deild karla, Bestu deildinni, hófst á mánudag með opnunarleik mótsins þar sem núverandi Íslandsmeistarar Víkings tóku á móti FH og unnu 2-1. Skagamenn eru á meðal þeirra tólf liða sem leika í Bestu deildinni í sumar eftir að hafa bjargað sér á ævintýralegan hátt frá falli í fyrra. Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari…Lesa meira

true

Íbúðaverð hefur hækkað um tæpan fjórðung á árinu

Samkvæmt upplýsingum frá Þjóðskrá var vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu 869,9 í mars 2022 (janúar 1994=100) og hækkaði um 3,1% á milli mánaða. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 7,4%, síðastliðna sex mánuði hækkaði hún um 11,6% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 22,2%.Lesa meira

true

Nítjánda / Bistro & Grill nýr rekstraraðili á Garðavelli

Nýr rekstraraðili hefur tekið við hjá Golfklúbbnum Leyni á Akranesi á Garðavelli en Galító sem hefur séð um veitingareksturinn ákvað að segja samningi sínum lausum og feta nýjar slóðir. Við tók tímafrekt ferli við leit að nýjum rekstraraðila og var það ekki fyrr en í lok mars að þau mál leystust með farsælum hætti. Samið…Lesa meira

true

Skagamenn náðu stigi gegn Stjörnunni

Stjarnan og ÍA mættust í fyrstu umferð í Bestu deild karla í knattspyrnu í gær og fór leikurinn fram í Garðabæ. Gísli Laxdal Unnarsson kom Skagamönnum í forystu eftir tæplega 20 mínútna leik. Alex Davey vann boltann við miðlínu, óð upp völlinn og lagði boltann til hliðar á Gísla sem kláraði færið einn á móti…Lesa meira

true

Sjaldan fleiri holur eftir erfiðan vetur

Vorverkin hjá Vegagerðinni eru komin í fullan gang, enda sumarið handan við hornið. Samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni er unnið hörðum höndum að því að gera við holur sem hafa myndast í bundnu slitlagi á vegum víða um land. „Holur myndast þegar vatn liggur í vegum. Vatn finnur sér alltaf leið. Ef það er t.d. mjög…Lesa meira

true

Almennt er góð staða brunavarna á heimilum

Nýlega lét brunavarnasvið Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar framkvæma könnun á stöðu brunavarna á heimilum landsmanna. Spurt var um brunavarnir á heimilum, flóttaleiðir og annað sem snýr að brunavörnum heimilisins. Í ljós kom að 98% svarenda eru með reykskynjara, 86% með slökkvitæki og 75% með eldvarnarteppi. Þá eru 54% með þrennar brunavarnir á heimilinu, 29% tvennar brunavarnir…Lesa meira

true

Leggja niður bankasýsluna

Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og innleitt verði nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. „Þar verður lögð áhersla á ríkari aðkomu Alþingis og að styrkari stoðum verði skotið undir að tryggja gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings.…Lesa meira

true

Sagan býr á Sauðafelli

Sauðafell í Miðdölum er merkur staður. Jörðin eins og hún er í dag er hluti af landnámi Erps Meldúnssonar hins stórættaða leysingja Auðar djúpúðgu. Á Sauðafelli bjó Sighvatur Sturluson og síðar sonur hans Sturla Sighvatsson ásamt konu sinni Solveigu Sæmundsdóttur. Talið er að mikið virki hafi staðið í landi Sauðafells á Sturlungaöld og þangað var…Lesa meira

true

Fuglaflensa greindist í heimilishænum

Fuglaflensuveirur (H5) hefur nú verið greind í sýnum sem tekin voru úr heimilishænum á bænum Reykjum á Skeiðum 15. apríl síðastliðinn og rannsökuð á Tilraunastöð HÍ að Keldum. Hænurnar voru með sjúkdómseinkenni sem bentu sterklega til að um fuglaflensu væri að ræða. Auk þess hafði fuglaflensa greinst í hrafni sem fannst dauður á bænum nokkrum…Lesa meira

true

Skeifudagurinn að venju fyrsta sumardag

Grani er hestamannafélag nemenda LbhÍ á Hvanneyri. Félagið býður á sumardaginn fyrsta til uppskeruhátíðar nemenda sem stundað hafa hestamennsku áfanga við skólann í vetur. Keppt verður um Morgunblaðsskeifuna og Gunnarsbikarinn ásamt því að afhent verða fleiri verðlaun. Haldið er sérstaklega uppá það að nú hefur skólinn eignast Mið-Fossa og verður því hægt að skoða aðstöðuna…Lesa meira