{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ríkisstjórnin hefur ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður og innleitt verði nýtt fyrirkomulag til að halda utan um eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum. „Þar verður lögð áhersla á ríkari aðkomu Alþingis og að styrkari stoðum verði skotið undir að tryggja gagnsæi, jafnræði, lýðræðislega aðkomu þingsins og upplýsingagjöf til almennings. Frumvarp þessa efnis verður lagt fyrir Alþingi svo fljótt sem auðið er,“ segir í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins. Þá kemur fram að ekki verði ráðist í frekari sölu á hlutum ríkisins í Íslandsbanka að sinni. „Þegar ný löggjöf liggur fyrir mun ákvörðun um mögulega sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka verða tekin fyrir á Alþingi. Ríkisstjórnin leggur hér eftir sem hingað til áherslu á óbreytt eignarhald ríkisins á hlut sínum í Landsbankanum,“ segir í tilkynningunni.",
"innerBlocks": []
}