{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Grani er hestamannafélag nemenda LbhÍ á Hvanneyri. Félagið býður á sumardaginn fyrsta til uppskeruhátíðar nemenda sem stundað hafa hestamennsku áfanga við skólann í vetur. Keppt verður um Morgunblaðsskeifuna og Gunnarsbikarinn ásamt því að afhent verða fleiri verðlaun. Haldið er sérstaklega uppá það að nú hefur skólinn eignast Mið-Fossa og verður því hægt að skoða aðstöðuna og fá sér kaffibolla að lokinni dagskrá í reiðhöllinni.\r\n\r\nSkeifudagurinn á sér langa sögu en Morgunblaðsskeifan var fyrst veitt við skólaslit Bændaskólans á Hvanneyri 4. maí 1957. Vildi Morgunblaðið með þessu framtaki sýna hug sinn til þessarar fornu og fögru íþróttar, hestamennskunnar. Skeifudagurinn er sannkölluð uppskeruhátíð nemenda í reiðmennskuáföngum skólans og sýna nemendur afrakstur vetrarins á tamningu og þjálfun tveggja hrossa. Þá eru veitt þar verðlaun auk Morgunblaðsskeifunnar, Gunnarsbikarinn, sem fer til þess nemenda sem fær hæstu einkunn í fjórgangskeppni, ásetuverðlaun Félags tamningamanna og Framfaraverðlaun Reynis. Loks fer Morgunblaðsskeifan til þess nemenda sem hlýtur hæstu meðaleinkunn úr verklegum reiðmennskuprófum.\r\n\r\nMorgunblaðsskeifan hefur verið veitt árlega síðan 1957, en mikill heiður þykir að hljóta Skeifuna og hafa sumir handhafar hennar seinna meir orðið einhverjir ástsælustu hestamenn landsins. Þá taka nemendur hestafræðibrautar einnig þátt og að lokinni keppni og sýningu verður boðið til kaffis og dregið í hinu rómaða stóðhestahappadrætti Grana. „Allir velkomnir að gleðjast með okkur og fagna komu sumarsins,“ segir í tilkynningu frá Grana.",
"innerBlocks": []
}
Skeifudagurinn að venju fyrsta sumardag - Skessuhorn