Sjaldan fleiri holur eftir erfiðan vetur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vorverkin hjá Vegagerðinni eru komin í fullan gang, enda sumarið handan við hornið. Samkvæmt tilkynningu frá stofnuninni er unnið hörðum höndum að því að gera við holur sem hafa myndast í bundnu slitlagi á vegum víða um land.\r\n\r\n„Holur myndast þegar vatn liggur í vegum. Vatn finnur sér alltaf leið. Ef það er t.d. mjög lítil sprunga í malbiki kemst vatn þar undir og safnast fyrir. Þegar vatn frýs eykst rúmmál þess og þegar það þiðnar aftur, er malbikið uppspennt. Ef þungur bíll ekur þar yfir og brýtur það niður getur hola myndast mjög hratt,“ segir Birkir Hrafn Jóakimsson, forstöðumaður á mannvirkjasviði Vegagerðarinnar. Hann segir að gert sé við holur eins fljótt og kostur er, oft í mjög erfiðum aðstæðum. „Þegar vorið kemur og aðstæður leyfa, förum við annað hvort í heilar yfirlagnir eða staðbundnar viðgerðir á stórum eða litlum holum,“ segir Birkir Hrafn og bendir á að holur séu ekki séríslenskt fyrirbæri.\r\n\r\n„Við hér á Íslandi erum ekki ein um að berjast við holur þegar vorið kemur með sínum leysingum. Ég hef fengið fréttir frá kollegum mínum um allan heim og þetta er alls staðar. Hins vegar erum við illa sett núna eftir mjög þungan vetur,“ segir Birkir Hrafn.\r\n\r\n<a href=\"https://www.youtube.com/watch?v=tcxX6sOHqWg\">Sjá nánar í myndbandi frá Vegagerðinni.</a>\r\n\r\n&nbsp;\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
Sjaldan fleiri holur eftir erfiðan vetur - Skessuhorn